Vorþing hefst á mánudag með umræðum um RÚV ohf.

Annasamt verður á Alþingi næstu tvo mánuði enda bíða 106 frumvörp og 67 þingsályktunartillögur afgreiðslu. Þrjátíu frumvörpum hefur þegar verið vísað til nefndar en önnur bíða fyrstu umræðu. Fyrsta málið sem alþingismenn takast á um er þriðja og síðasta umræða um stjórnarfrumvarp þess efnis að Ríkisútvarpið (RÚV) verði gert að hlutafélagi. Ætla má að umræður verði fjörlegar enda er stjórnarandstaðan andvíg frumvarpinu.

Össur Skarphéðinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir þetta fyrsta skrefið í að selja Ríkisútvarpið og Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri grænna, segir frumvarpið stórskaðlegt fyrir RÚV. "Þetta er orðin stagbætt tötraflík og frumvarpið er alveg jafnumdeilt og það hefur verið frá fyrstu tíð," segir Ögmundur.

"Búið að segja flest sem þarf"

Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknar, telur þó að RÚV-frumvarpið ætti ekki að taka langan tíma enda sé búið að segja um það flest sem segja þarf. "En eflaust taka menn til máls í upphlaupstilgangi," segir Hjálmar og bætir við að þingið muni einkennast af upphlaupum, eins og oft vill verða í aðdraganda kosninga.

Stjórnarandstaðan hefur farið fram á að afgreiðslu RÚV-frumvarpsins verði frestað svo tóm gefist til að skoða gögn frá ESA, eftirlitsnefnd EFTA, en þar sem meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks er samstígur má ætla að frumvarpið verði fljótlega að lögum.

Formenn stjórnarandstöðuflokkanna lýstu því yfir á haustdögum að þeir hygðust stilla saman strengi sína í allan vetur. "Samstaða stjórnarandstöðunnar hefur gengið algjörlega eftir á þinginu. Við höfum sameinast um burðarmál og velferðarmálin eru kjarninn í okkar samstarfi," segir Össur. "Fari svo að ríkisstjórnin tapi meirihluta í kosningunum í vor munu þessir þrír flokkar tala saman fyrst áður en þeir ræða við aðra flokka um myndun ríkisstjórnar," áréttar hann.

Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, segir aftur á móti engin skýr merki um samstöðu hjá stjórnarandstöðunni. "Þau eru oft með tvö og jafnvel þrjú minnihlutaálit í málum og svo eru skýr skil milli skoðana flokkanna varðandi ýmis mál," segir Arnbjörg og tekur utanríkismál og innflytjendamál sem dæmi. Hjálmar Árnason er á sömu skoðun og segir samstarf stjórnarandstöðunnar eingöngu vera í orði en ekki á borði, enda sé þetta sundurleitur hópur.

Samvinna Framsóknar og Sjálfstæðisflokks hefur einnig verið milli tannanna á fólki og heyrst hafa raddir um þreytu í stjórnarsamstarfinu. Arnbjörg og Hjálmar vísa því bæði á bug og segja þessar raddir ekki munu hafa áhrif á samstarf flokkanna á endaspretti kjörtímabilsins. "Við ljúkum kjörtímabilinu en svo koma kosningar og að vanda ganga allir flokkar óbundnir til kosninga," segir Hjálmar.

Heildarlög um Vatnajökulsþjóðgarð bíða fyrstu umræðu en Arnbjörg segir jákvæðar raddir heyrast um þetta frumvarp. "Ég held að þarna verði ekki mjög andstæð sjónarmið þótt þetta sé auðvitað stórmál enda um stórt landsvæði að ræða," segir Arnbjörg og bætir við að það geti verið ómögulegt að spá fyrir um hvaða mál veki miklar umræður, ekki síst í aðdraganda kosninga.

Innflytjendamál á dagskrá

Stefnumótun varðandi stöðu innflytjenda á vinnumarkaði er á lokasprettinum en um er að ræða samvinnu stjórnvalda, atvinnurekenda og verkalýðshreyfinga. "Mér sýnist þingheimur nokkurn veginn vera á sömu línu varðandi þetta," segir Hjálmar en útilokar þó ekki að til orðaskipta komi vegna málefna innflytjenda.

Magnús Þór Hafsteinsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, segist eiga von á frumvarpi frá félagsmálaráðherra um atvinnumál innflytjenda. "Ég vænti þess að það gefi verkalýðsfélögum möguleika á að hafa betra og skilvirkara eftirlit svo ekki sé verið að brjóta á þessu fólki. Þá verður vonandi unnið að mjög svo tímabærum úrbótum hvað varðar réttindi og skyldur launþega og atvinnurekenda," segir Magnús sem á von á líflegu þingi og þá ekki síst átökum um samgöngumál, enda ný samgönguáætlun í bígerð.

Stjórnarandstaðan vonast eftir að koma sínum málum á dagskrá en Ögmundur segir þau þingmál m.a. taka á kjarajöfnuði í þjóðfélaginu, jafnréttismálum og umhverfismálum. "En mér býður í grun að meirihlutinn vilji helst ljúka þingi sem fyrst svo ráðherrar geti tekið til við það af alvöru að klippa borða og safna á sig skrautfjöðrum fyrir kosningar," segir Ögmundur

Önnur stjórnarfrumvörp sem bíða afgreiðslu og gætu leitt til líflegra umræðna í þinginu eru t.d. fjölmiðlafrumvarpið, frumvarp um nýsköpunarsjóð og frumvarp um heildarlög um embætti landlæknis.

Í hnotskurn
» 106 frumvörp og 75 þingsályktunartillögur bíða afgreiðslu Alþingis sem kemur saman á mánudag
» Vorþingið stendur aðeins í tvo mánuði að þessu sinni vegna komandi alþingiskosninga.
» Þriðja umræða um Ríkisútvarpið ohf. verður fyrst á dagskrá en stjórnarandstaðan hyggst beita sér gegn því frumvarpi af öllu afli.

halla@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Á meðfylgjandi skjámynd má sjá hvernig hægt er að kalla fram upplýsingar um farsíma í ...

Prófa viðvörunarboð í farsíma

10:27 Viðvörunarkerfi sem getur sent neyðarskilaboð (sms) í farsíma vegna hættu hefur verið þróað til notkunar fyrir almannavarnir hér á landi. Verður kerfið reynt á þriðjudag með því að skilaboð verða send í farsíma í Vík í Mýrdal og nágrenni. Meira »
Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.

Skilaði inn 200 auka undirskriftum

10:27 „Það er búið að skila inn, í morgun, einhverjum tæpum 200 nöfnum til viðbótar í Reykjavík, þar sem að þetta kom upp,“ segir Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, aðspurður hvort hann sé búinn að skila inn nýjum undirskriftum í stað þeirra sem yfirkjörstjórnirnar í Reykjavík gerðu athugasemdir við. Meira »

Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni

Ásmundur Einar Daðason
10:24 „Í aðdraganda þess að Alþingi samþykkti að leggja fram umsókn um aðild að Evrópusambandinu gáfu stjórnmálamenn fyrirheit um það að jafnræðis, hlutleysis og hlutlægni yrði gætt í umræðu um málið“, segir Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Þráðlaust net í Íslandsflugi

09:56 Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Misþyrmdi manni og skildi eftir

Laugavegur.
09:57 Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en hann misþyrmdi manni um fertugt í febrúar sl. í íbúð við Laugaveg. Tveir til viðbótar eru jafnframt ákærðir fyrir að koma manninum ekki til hjálpar þar sem hann lá ósjálfbjarga og lífshættulega slasaður. Meira »

Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.
09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Honda Civic ES 2006
Honda Civic ES árgerð 2006 svartur. Ekinn aðeins 61 þús. sjálfskiptur, topplúga,...
Lightroom námskeið 11.og 13. júní 2012
Grunn námskeið í Lightroom. Kennd verða allir helstu verkferlar og á helstu aðge...
Til leigu 2-4 m sumarhús í Hvalfirði
Vel búin, gasgrill og heitur pottur. Frábært útsýni. Fjölbreytt afþreying í nágr...
Yamaha DT50R
Til sýnis og sölu hjá Yamaha/Artic Trucks. 80cc kit kraft sía og stærri blöndung...
 
Aðalfundarboð
Fundir - mannfagnaðir
Félag skipstjórnarmanna ...
Sýslumaðurinn á sauðárkróki - framhald uppboðs

Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi e...
Akstur fyrir strætó

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...