Yfirlýsing frá 101 Skuggahverfi

Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi yfirlýsing vegna umfjöllunar fjölmiðla um húseignir í Skuggahverfi. Millifyrirsagnir eru blaðsins:

"Undanfarna daga hafa fjölmiðlar fjallað um ástand húseigna 1. áfanga í Skuggahverfinu, sem afmarkast af Frakkastíg, Skúlagötu, Lindargötu og Vatnsstíg, en Skuggahverfi mun rísa í þremur áföngum.

Þegar ákveðið var að ráðast í uppbyggingu Skuggahverfis var ekkert til sparað, svo tryggja mætti að fasteignirnar yrðu sem veglegastar. Víða var leitað fanga eftir samstarfsaðilum og á endanum var samið við dönsku arkitektastofuna SHL, sem hefur mikla reynslu af hönnun fjölbýlishúsa í miðbæjum og við hafnarsvæði. Óhætt er að segja að verkefnið sé eitt það metnaðarfyllsta sem ráðist hefur verið í, hér á landi, um árabil.

Vinna Eyktar ófullnægjandi

Frá því vorið 2004 hefur 101 Skuggahverfi átt í ágreiningi við verktakafyrirtækið Eykt, sem sá um byggingu 1. áfanga Skuggahverfis. Deilur félaganna eru margvíslegar en eiga það flestar sameiginlegt að 101 Skuggahverfi telur að vinna Eyktar hafi verið ófullnægjandi og ekki samkvæmt þeim samningum, sem gerðir voru áður en hafist var handa við uppbyggingu 1. áfanga Skuggahverfis. Fyrir um einu og hálfu ári taldi 101 Skuggahverfi ljóst að Eykt mundi ekki uppfylla samningsskyldur sínar. Því neyddist 101 Skuggahverfi til að fá annan verktaka til að ljúka ýmsum frágangi við 1. áfanga hverfisins, svo hægt væri að uppfylla þær kröfur sem bæði íbúar hverfisins og 101 Skuggahverfi gera til bygginganna.

Í ljósi fréttaflutnings í tengslum við flísaklæðningu á húsunum er rétt að taka sérstaklega fram, að hönnun, kaup og uppsetning á flísum og uppsetningakerfi var í höndum Eyktar.

Þar sem fyrirtækjunum hefur ekki tekist að leysa úr ágreiningsmálum sínum hefur 101 Skuggahverfi óskað eftir dómkvaðningu matsmanna. Félagið vill fá úr því skorið hver sé orsök þeirra vandamála sem upp hafa komið. Meðal þess sem matsmennirnir hafa eða munu skoða eru skemmdir á gleri og flísaklæðningu húsanna, frágangur á svalagólfum og sprungur í steinsteyptri plötu í bílakjallara.

Unnið í samráði við íbúa

Frá því að ágreiningur fyrirtækjanna kom upp hefur 101 Skuggahverfi verið íbúum bygginganna innan handar, svo greiða megi úr vandamálum. Unnið hefur verið að þessum málum í samráði við íbúa og stjórn húsfélagsins, enda ljóst að hagsmunir íbúanna og fyrirtæksins fara saman. Í ljósi þess að nú er mál rekið fyrir dómstólum telja forsvarsmenn 101 Skuggahverfis ekki rétt að tjá sig frekar um þennan ágreining, fyrr en niðurstaða er fengin.

Uppbygging 2. áfanga er þegar hafin og hefur 101 Skuggahverfi samið við annan verktaka um uppbyggingu hans. Alls verða fimm íbúðarhús í 2. áfanga. Hæsta bygging áfangans verður 63 metra há og 19 hæðir. Sú bygging, auk tveggja lægri bygginga, mun standa við Vatnsstíg og Skúlagötu. Þá verða tvö íbúðarhús við Lindargötu. Húsin verða síðan öll tengd saman neðanjarðar með bílageymslum á þremur hæðum, en samtals verða rúmlega 250 bílastæði í öðrum og þriðja áfanga.

Fyrirtækið 101 Skuggahverfi var stofnað í kringum uppbyggingu Skuggahverfis. Ljóst er að fyrirtækinu er mikið kappsmál að í hvívetna sé vandað til verka og byggingarnar rísi undir þeim væntingum sem til þeirra eru gerðar."

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Á meðfylgjandi skjámynd má sjá hvernig hægt er að kalla fram upplýsingar um farsíma í ...

Prófa viðvörunarboð í farsíma

10:27 Viðvörunarkerfi sem getur sent neyðarskilaboð (sms) í farsíma vegna hættu hefur verið þróað til notkunar fyrir almannavarnir hér á landi. Verður kerfið reynt á þriðjudag með því að skilaboð verða send í farsíma í Vík í Mýrdal og nágrenni. Meira »
Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.

Skilaði inn 200 auka undirskriftum

10:27 „Það er búið að skila inn, í morgun, einhverjum tæpum 200 nöfnum til viðbótar í Reykjavík, þar sem að þetta kom upp,“ segir Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, aðspurður hvort hann sé búinn að skila inn nýjum undirskriftum í stað þeirra sem yfirkjörstjórnirnar í Reykjavík gerðu athugasemdir við. Meira »

Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni

Ásmundur Einar Daðason
10:24 „Í aðdraganda þess að Alþingi samþykkti að leggja fram umsókn um aðild að Evrópusambandinu gáfu stjórnmálamenn fyrirheit um það að jafnræðis, hlutleysis og hlutlægni yrði gætt í umræðu um málið“, segir Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Þráðlaust net í Íslandsflugi

09:56 Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Misþyrmdi manni og skildi eftir

Laugavegur.
09:57 Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en hann misþyrmdi manni um fertugt í febrúar sl. í íbúð við Laugaveg. Tveir til viðbótar eru jafnframt ákærðir fyrir að koma manninum ekki til hjálpar þar sem hann lá ósjálfbjarga og lífshættulega slasaður. Meira »

Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.
09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
VANTAR BÍLSKÚR EÐA SVPAÐ PLÁSS
Mig vantar bílskúr eða svipað pláss undir TRÉFÖNDUR Í MOSFELLSBÆ EÐA NÁGRENNI ke...
NISSAN PRIMERA 2002. Sjálfskiptur og nýskoðaður og ÓDÝR!
Til sölu Nissan Primera árg. 2002, ekinn 149 þúsund km. Bíllinn er í toppstandi,...
Til sölu Harley davidson 100ára afmælisútgáfa
Harley davidson Dyna glide(fxdvg wide 100ára afmælisútgáfa uppl 6624961...
Trúlofunar- og giftingahringar
Auk gullhringa eigum við m.a. titanium og tungstenpör á fínu verði. Sérsmíði, fr...
 
Stykkishólmur vatnshús við skipavíkurbryggju

Útboð Stykkishólmur, vatnshús við...
Samkoma sunnudagur
Félagsstarf
Sunnudagur Kl. 11.00 Samkoma o...
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...