Átta lífeyrissjóðir ákveða að lækka ekki lífeyri í bili
Umræddir sjóðir eru Festa lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður Austurlands, Lífeyrissjóður Bænda, Lífeyrissjóður Norðurlands, Lífeyrissjóður Rangæinga, Lífeyrissjóður Vestfirðinga, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja, Stafir lífeyrissjóður.
Í tilkynningu frá sjóðunum segir, að á undanförnum árum hafi örorkulífeyrir lífeyrissjóðanna vaxið hröðum skrefum. Sé nú svo komið, að þessi mikli vöxtur örorkulífeyris sé farinn að ógna öðrum lífeyristegundum hjá sjóðunum. Mikill vöxtur örorkulífeyris munu þannig leiða til lækkunar á ellilífeyri ef ekki takist að sporna við þessum vexti. Stjórnir lífeyrissjóðanna eigi að gæta hagsmuna allra sjóðfélaga og raunar segi í samþykktum sjóðanna að þeim beri að standa vörð um ellilífeyri umfram önnur lífeyrisréttindi.
„Við tekjuathuganir hefur komið í ljós að nokkur fjöldi örorkulífeyrisþega hefur nú mun hærri tekjur en þeir höfðu fyrir orkutap. Lífeyriskerfið er við það miðað að bæta einstaklingum allt að því tekjutapi sem þeir urðu fyrir við orkutapið, en ekkert umfram það. Samkvæmt samþykktum sjóðanna ber þeim því að lækka lífeyririnn hjá þeim sem nú hafa hærri tekjur eftir orkutapið en þeir höfðu fyrir orkutap.
Á undanförnum árum hafa lífeyrissjóðirnir ekki tekið að fullu tillit til tekna lífeyrisþega frá Tryggingastofnun ríkisins. Með nýlegri tekjuathugun var við það miðað að tekið yrði tillit til allra tekna og hefur það valdið nokkrum óróa í samfélaginu. Nú er í gangi vinna á vegum stjórnvalda sem miðar að því að endurskoða tryggingakerfið í heild sinni og skilgreina betur hlutverk lífeyrissjóða annars vegar og almannatrygginga hins vegar. Viðurkennt hefur verið af hálfu stjórnvalda að örorkulífeyrir frá lífeyrissjóðunum er nú orðinn verulega meiri en gert var ráð fyrir við uppbyggingu lífeyrissjóðakerfisins. Auk þess bitnar þessi aukning örorkulífeyris mjög mismunandi mikið á einstökum sjóðum, sem ekki getur talist sanngjarnt eða eðlilegt. Aukning á örorku er samfélagslegt vandamál, sem rétt er að taka sameiginlega á.
Í ljósi ofangreindra atriða og í trausti þess að lífeyriskerfið verði endurskoðað með það að markmiði að jafna aðstöðu sjóðanna og draga úr örorkulífeyrisbyrði þeirra hafa eftirtaldir sjóðir samþykkt að framkvæma tekjuathugun nú í samræmi við eldri reglur og taka ekki að fullu tillit til tekna frá Tryggingastofnun ríkisins. Jafnframt skora sjóðirnir á stjórnvöld að flýta endurskoðun kerfisins þannig að nýjar reglur verði tilbúnar áður en næsta tekjuathgun lífeyrissjóðanna á að fara fram haustið 2007," segir í tilkynningu frá sjóðunum.





































