"Leita eftir staðreyndum"

Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Herbalife vegna umfjöllunar í íslenskum fjölmiðlum að undanförnu:

„Vegna frétta um Herbalife í sjónvarpinu og Morgunblaðinu vill fyrirtækið taka fram:

Við fullvissum viðskiptavini Herbalife um að vörur okkar eru öruggar. Herbalife-vörur hafa verið seldar á Íslandi sjö undanfarin ár með fullu samþykki Lyfjaeftirlits ríkisins. Hjá okkur er í fyrirrúmi að neytendur treysti vörunum og áhrifamætti þeirra. Fulltrúi Herbalife hitti Magnús Jóhannsson prófessor í apríl 2006. Magnús Jóhannsson lýsti þeirri skoðun sinni að sumar vörur kynnu að hafa innihaldið eitt eða fleiri af níu jurtaefnum sem hann taldi áhyggjuefni, þ.e. birkiösku, býflugnafrjóduft, drottningarhunang, Gingo Biloba, Jóhannesarjurt, kvöldvorrósarolíu, sólhatt, ginseng og efedra/efedrín beiskjuefni.

Herbalife staðfesti í bréfi til Magnúsar Jóhannssonar að þau 32 fæðubótarefni Herbalife, sem væru skráð hjá Lyfjaeftirliti ríkisins til sölu á Íslandi, innihéldu ekki ofangreindar jurtir fyrir utan Male Factor 1000 sem í eru tvenns konar ginseng-efni. Að auki staðfesti nánari rannsókn á blöndunum að engin vara innihéldi neinar jurtir sem vísindamenn hafa talið hafa hugsanleg eitrunaráhrif. Þar sem viðskiptavinir okkar bera fullt traust til vara okkar, leituðum við einnig að mengunarefnum í þeim, svo sem þungmálmum eða leifum af skordýraeitri, en fundum ekkert slíkt.

Herbalife fór því fram á styttar sjúklingaupplýsingar frá Magnúsi Jóhannssyni til að skilja betur möguleikana á undirliggjandi sjúkdómseinkennum. Enn höfum við ekki fengið þessar upplýsingar en höldum áfram að leita eftir staðreyndum þessa máls til að geta framkvæmt viðeigandi rannsóknir.

Í þeim fáu fyrirspurnum, sem fyrirtækið hefur fengið undanfarin 26 ár og tengjast lifrarsjúkdómum, hefur í flestum tilvikum komið í ljós að þeir tengjast fyrirliggjandi orsökum eins og veirusýkingu vegna áfengisneyslu, sykursýki, offitu, lifrarbólgu, fitulifrarsýki, öðrum heilsufarsástæðum eða lyfjatöku.

Þessi fáu tilfelli sem athygli okkar hefur verið vakin á, hafa verið könnuð af læknum okkar í ráðgjafarnefnd Herbalife og óháðum lifrarsérfræðingum sem allir hafa komist að þeirri niðurstöðu að engin bein eða eiginleg eitrun sé af völdum Herbalife-vara eða innihaldi þeirra.

Jurtaefni í vörum Herbalife eru öll vel þekkt og notuð víða um heim. Öryggi þeirra og áhrif hafa margsinnis verið prófuð og á Íslandi hafa öll efni okkar verið heimiluð af hálfu Lyfjaeftirlits ríkisins. Þeirra er óhætt að neyta.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Viagra

Meira haldlagt af stinningarlyfjum

10:32 Gríðarleg aukning varð í magni stinningarlyfja sem Tollgæslan lagði hald á við eftirlit í fyrra miðað við árið 2010. Hins vegar liggja ekki fyrir tölur um þróunina það sem af er þessu ári. Meira »
Á meðfylgjandi skjámynd má sjá hvernig hægt er að kalla fram upplýsingar um farsíma í ...

Prófa viðvörunarboð í farsíma

10:27 Viðvörunarkerfi sem getur sent neyðarskilaboð (sms) í farsíma vegna hættu hefur verið þróað til notkunar fyrir almannavarnir hér á landi. Verður kerfið reynt á þriðjudag með því að skilaboð verða send í farsíma í Vík í Mýrdal og nágrenni. Meira »

Skilaði inn 200 auka undirskriftum

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
10:27 „Það er búið að skila inn, í morgun, einhverjum tæpum 200 nöfnum til viðbótar í Reykjavík, þar sem að þetta kom upp,“ segir Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, aðspurður hvort hann sé búinn að skila inn nýjum undirskriftum í stað þeirra sem yfirkjörstjórnirnar í Reykjavík gerðu athugasemdir við. Meira »

Misþyrmdi manni og skildi eftir

Laugavegur.
09:57 Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en hann misþyrmdi manni um fertugt í febrúar sl. í íbúð við Laugaveg. Tveir til viðbótar eru jafnframt ákærðir fyrir að koma manninum ekki til hjálpar þar sem hann lá ósjálfbjarga og lífshættulega slasaður. Meira »

Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.
09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni

Ásmundur Einar Daðason
10:24 „Í aðdraganda þess að Alþingi samþykkti að leggja fram umsókn um aðild að Evrópusambandinu gáfu stjórnmálamenn fyrirheit um það að jafnræðis, hlutleysis og hlutlægni yrði gætt í umræðu um málið“, segir Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Þráðlaust net í Íslandsflugi

09:56 Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hobby 560 kmfe kojuhús til sölu árg 2007
Til Sölu Hobby 560 kmfe Exclusive,, útvarp sjónvarp dvd ,sólarsella, boiler ,álf...
Íbúð til leigu í Garðinum
4 herbergja Íbúð til leigu í Garðinum á Suðurnesjum. Laus 1. júlí. Langtímaleiga...
50 vinsælustu vörurnar í netverslun femin.is
Kynntu þér fjölbreytt úrval í netverslun www.femin.is og yfir 7.000 vöruliði ! ...
Kisi er týndur
Hann er hvítur og grábröndóttur og týndist í Fossvoginum. Hann er eyrnamerktur o...
 
Framhald uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...