Lífsýni tekin í skoðun

Rannsókn kynferðisbrotadeildar LRH á meintri kynferðislegri áreitni 26 ára gamals manns gagnvart fjórum telpum á aldrinum 5 til 12 ára í Vogahverfi á mánudag beinist m.a. annars að því að upplýsa hvað maðurinn gerði yngstu telpunni sem hann mun hafa hitt fyrir á leikvelli. Snerting mun hafa átt sér stað en hversu gróf hún var er enn ekki vitað.

Hins vegar er ekki uppi rökstuddur grunur um nauðgun og er málið rannsakað í heild sem meint kynferðisleg áreitni og litið alvarlegum augum sem slíkt. Til öryggis voru tekin lífsýni af hinum grunaða og brotaþola eins og venja er í málum af þessu tagi.

Maðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 26. janúar á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Hefur hann ekki komið við sögu lögreglu áður vegna kynferðisbrota.

Handtekinn samdægurs eftir lýsingu móður

Maðurinn var handtekinn sama dag og tilkynningar bárust lögreglu frá mæðrum allra telpnanna. Það sem kom lögreglunni á sporið var frásögn einnar móðurinnar sem séð hafði bifreið og mann sem svipaði til lýsingar dóttur hennar. Það tiltekna barn hafði maðurinn reynt að tæla upp í bíl til sín og sömu aðferð beitti hann á tvær telpur í viðbót, en umræddar þrjár telpur voru allar einar á ferð þegar hann ók upp að þeim og gaf sig á tal við þær. Allar sáu þær við honum og neituðu að fara upp í bílinn til hans en sögðu mæðrum sínum hvað gerst hafði. Átti þetta sér stað við Karfavog, Langholtsveg, Goðheima og Rauðalæk.

Maðurinn var hins vegar fótgangandi að því er talið er þegar hann gerðist ágengur við yngstu telpuna á leikvellinum.

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu leikur ekki grunur á um tengsl þessa máls við önnur óupplýst mál af svipuðum toga þar sem ókunnugir menn eða menn á bíl hafa nálgast telpur á grunsamlegan hátt. Dæmi er um að maður hafi tekið telpu upp í bíl og skilið hana eftir á víðavangi í slæmu veðri en henni var bjargað af vegfaranda.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Viagra

Meira haldlagt af stinningarlyfjum

10:32 Gríðarleg aukning varð í magni stinningarlyfja sem Tollgæslan lagði hald á við eftirlit í fyrra miðað við árið 2010. Hins vegar liggja ekki fyrir tölur um þróunina það sem af er þessu ári. Meira »
Á meðfylgjandi skjámynd má sjá hvernig hægt er að kalla fram upplýsingar um farsíma í ...

Prófa viðvörunarboð í farsíma

10:27 Viðvörunarkerfi sem getur sent neyðarskilaboð (sms) í farsíma vegna hættu hefur verið þróað til notkunar fyrir almannavarnir hér á landi. Verður kerfið reynt á þriðjudag með því að skilaboð verða send í farsíma í Vík í Mýrdal og nágrenni. Meira »

Skilaði inn 200 auka undirskriftum

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
10:27 „Það er búið að skila inn, í morgun, einhverjum tæpum 200 nöfnum til viðbótar í Reykjavík, þar sem að þetta kom upp,“ segir Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, aðspurður hvort hann sé búinn að skila inn nýjum undirskriftum í stað þeirra sem yfirkjörstjórnirnar í Reykjavík gerðu athugasemdir við. Meira »

Misþyrmdi manni og skildi eftir

Laugavegur.
09:57 Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en hann misþyrmdi manni um fertugt í febrúar sl. í íbúð við Laugaveg. Tveir til viðbótar eru jafnframt ákærðir fyrir að koma manninum ekki til hjálpar þar sem hann lá ósjálfbjarga og lífshættulega slasaður. Meira »

Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.
09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni

Ásmundur Einar Daðason
10:24 „Í aðdraganda þess að Alþingi samþykkti að leggja fram umsókn um aðild að Evrópusambandinu gáfu stjórnmálamenn fyrirheit um það að jafnræðis, hlutleysis og hlutlægni yrði gætt í umræðu um málið“, segir Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Þráðlaust net í Íslandsflugi

09:56 Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
RENAULT MEGANE SPORT TOURER
Renault Megane Sport Tourer Nýskr. 3/2004, ekinn 122 þ. km, bens...
Honda Accord Sport Special Edition 11/07
Ek. 44 þ.km. 2,0L vél, sjálfsk., 17" álfelgur, sumar- og vetrard, hiti í sætum, ...
Íbúð til leigu á Selfossi
Tveggja herbergja íbúð fyrir 50 ára og eldri til leigu á Selfossi. Laus frá 1. ...
Vaktaðu heitapottinn!
Með einföldu kerfi getur þú vaktað hita og straum á heitapottinum. Vertur áhyggj...
 
Framhald uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð www.naudungarsolur.is Framhal...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
7 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...