Útlit fyrir methita á landinu
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur sagði á bloggsíðu sinni, Veðurvaktinni, í gærkvöldi að afar hlýtt loft, sem var á leiðinni til Íslands, gæti vegið að janúarhitametinu frá árinu 1992 þegar hitinn á Dalatanga mældist tæpar 19 gráður á Celsius.
Einar sagði að samspil hæðarinnar og Grænlands væri þannig að loftið kæmi ekki siglandi ofan á haffletinum heldur kæmi það að ofan, með niðurstreymi.
Gert var ráð fyrir því á spákorti fyrir klukkan sex í morgun að hitinn í um 1.400 metra hæð yrði um það bil 10 gráður. Búast mátti við því að hitinn yrði um 20 gráður á yfirborðinu. "Skilyrði til þess er helst að vænta hlémegin hárra fjalla og vindur yfir landinu þyrfti helst að vera nokkuð hvass," sagði Einar Sveinbjörnsson.
Gert var ráð fyrir því að hlýjasti kjarni loftsins færi nokkuð hratt austur með landinu. Einkum var búist við miklum hita suðaustanlands og á sunnanverðum Austfjörðum.
Einar sagði að hitinn virtist geta orðið ívið meiri í dag en á Dalatanga 14. janúar 1992 þegar hann mældist 18,8 gráður. Hitastigið í um 1.400 metra hæð var þá 7 gráður en nú 10 gráður. Til þess að draga enn betur fram hversu óvenjulegar aðstæður gætu verið í vændum nefndi Einar að hitinn þarna uppi hefði verið heldur minni en 10 gráður á hlýjasta degi sumarsins 2006, eða þann dag sem mestur hiti mældist á veðurstöð, það er 3. ágúst.
"Þá var vitanlega mikil hjálp í sólinni til að ná upp háum hita við yfirborð (25,3°C í Ásbyrgi) ásamt varmanum í sjálfum loftmassanum. Nú um miðjan vetur er hins vegar sólinni ekki til að dreifa, aðeins hinum suðlæga loftmassa!"
Einar kvaðst hafa verið á vakt á Veðurstofunni nóttina sem methitinn varð á Dalatanga. "Óvenjuleg hlýindi voru almennt á landinu daginn áður og fréttamenn voru nokkuð spenntir að greina frá þessu óvenjulega veðri, því þessa vetur var veður eðlilegra en síðar varð, oftar en ekki snjóþyngsli og vetrarveður."
Innlent »
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
- Samningar Lýsingar leigusamningar
- Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna
- Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar
- Góður afli við Kolbeinsey
- Ferðamenn í aðgerð vegna beinbrota
- Kannast ekki við gjaldeyrisbrask með úr
- Agnes vígð 24. júní
- Áhrif bindandi úrskurða undir
- Verður þingað fram í júlí?
-
Kosning um viðræður óvanaleg
- Seldi Rolex úr fyrir skútuvarahlut
- Samherji kærir til Hæstaréttar
- Hraðakstur í Sigtúni
- Skrifuðu ekki undir með eigin hendi
- Þjóðaratkvæðagreiðsla í október
- Með 25 kannabisplöntur í Kópavogi
- Með ólíkindum að sleppa lifandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 24. janúar 2007, Innlent Allt útlit fyrir að janúarhitametið verði ekki slegið
- Sunnudagur, 17. desember 2006, Innlent Frostið fór niður í tuttugu gráður í Eyjafjarðarsveit í nótt
- Sunnudagur, 29. apríl 2007, Innlent Hitamet slegið í Stykkishólmi í gær
- Föstudagur, 28. apríl 2006, Innlent Líklegt að hitamet hafi verið slegið á Kollaleiru í Reyðarfirði
- Fimmtudagur, 1. júní 2006, Innlent Hlýtt á Austurlandi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu




































