Bónus verðlaunar birgja sem ekki hafa hækkað verð á vörum

Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur

elva@mbl.is

VERSLANAKEÐJAN Bónus hefur tekið upp á því að verðlauna þá birgja sem ekki hafa hækkað verð á vörum sínum til verslunarinnar, með því að vekja sérstaka athygli viðskiptavina á þessum vörum, að sögn Guðmundar Marteinssonar, framkvæmdastjóra Bónuss.

"Við erum að benda viðskiptavinum okkar á vörur frá birgjum sem ekki hafa hækkað. Til dæmis byrjuðum við í morgun [í gær] að auglýsa allt lambakjöt frá Kaupfélagi Skagfirðinga en það er engin hækkun þar," segir Guðmundur og bætir við að jákvæð viðbrögð hafi fengist við þessu. Bónus muni halda áfram að reyna að verðlauna þá birgja sem ekki hafi boðað hækkun og athuga hvort það hafi hugsanlega þau áhrif á aðra birgja að þeir dragi hækkanir til baka.

Guðmundur segir að töluvert hafi verið um hækkanir frá birgjum undanfarið og fleiri hækkanir hafi verið boðaðar á næstunni. Hækkanir birgja til verslana séu frá 3% og upp í nokkra tugi prósenta. "Sem dæmi má nefna að allur ávaxtasafi hækkar um 20–30% vegna hráefnishækkana," segir hann og vísar til uppskerubrests á appelsínum. Algengustu skýringar birgja á hærra verði til verslana séu launahækkanir 1. janúar sl.

Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert