Ísland kjörinn vettvangur fyrir Microsoft

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. mbl.is/Ómar

Ísland sé í fremstu röð varðandi hlutfallslega notkun á tölvum og farsímum og netvæðing komin lengra en í flestum öðrum ríkjum, markaður sé háþróaður og stjórnsýsla gegnsæ. Þessir eiginleikar geri Ísland kjörið til að vera þróunarvettvangur fyrir nýjan hugbúnað.

Ólafur Ragnar sækir í dag leiðtogaráðstefnu, sem haldin er í skoska þinginu í Edinborg. Ráðstefnan ber heitið Microsoft Government Leaders Forum og er þar fjallað um áhrif upplýsingatækni á lýðræði og atvinnulíf í Evrópu. Ráðstefnuna sækja forystumenn margra ríkja í Evrópu og áhrifafólk á sviði upplýsingatækni.

Í erindi, sem Ólafur Ragnar flytir, fjallar hann meðal annars um breytingar sem orðið hafa á lýðræðisskipan í álfunni og áhrif upplýsingatækni á möguleika einstaklinga til að hafa áhrif, jafnt á heimavelli sem á alþjóðlegum vettvangi. Jafnframt ræðir Ólafur Ragnar um tækifæri sem smáar þjóðir á borð við Íslendinga geta skapað sér með markvissri nýtingu fjarskipta- og upplýsingatækni.

Í erindinu segir Ólafur Ragnar að Ísland sé kjörinn vettvangur fyrir Microsoft og önnur öflug hugbúnaðarfyrirtæki til að þróa nýjan hugbúnað og tækni. Ísland sé í fremstu röð varðandi hlutfallslega notkun á tölvum og farsímum og netvæðing komin lengra en í flestum öðrum ríkjum, markaður sé háþróaður og stjórnsýsla gegnsæ. Þessir eiginleikar geri Ísland kjörið til að vera þróunarvettvangur fyrir nýjan hugbúnað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert