Götuleikhús, barítónar og ballett meðal viðburða á Listahátíð

Bryn Terfel á tónleikum.

Bryn Terfel á tónleikum. mbl.is/Sverrir

Dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2007 var kynnt á blaðamannafundi í morgun og eru þar margir „óvenjulega stórir og glæsilegir viðburðir“ á dagskrá, að sögn kynningarstjóra hátíðarinnar, Guðrúnar Kristjánsdóttur. 28 viðburðir eru á dagskrá og má þar m.a. nefna San Fransisco ballettinn, franska götuleikhúsið Royal Deluxe og stórtónleika tónskáldsins Goran Bregovic og 40 manna hljómsveitar hans frá Balkanskaga. Bregovic samdi m.a. tónlist við kvikmyndirnar Underground og Arizona Dream.

Hátíðin verður haldin dagana 10. – 26. maí. Upphafsdagar hátíðarinnar marka lok frönsku menningarkynningarinnar „Pourqoui Pas? Franskt vor á Íslandi 2007” með glæsilegum götuatriðum franska hópsins Royal de Luxe, sem sýna útiatriði af stærðargráðu sem Reykvíkingar hafa ekki áður kynnst, að því er segir í fréttatilkynningu vegna hátíðarinnar. Brúður götuleikhússins verða um 8 metra háar. Reykvískum skólabörnum verður boðið í bæinn af þessu tilefni og munu þau fylla götur miðborgarinnar í miðborginni ásamt hinum frönsku gestum.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra setur hátíðina í Listasafni Íslands og við það tilefni koma fram Hamrahlíðarkórinn, afríski hópurinn Konono N°1, Ghostigital og fleiri. Af öðrum stórviðburðum nefnir Guðrún tónleika barítónsöngvaranna Bryn Terfel og Dmitri Hvorostovsky, auk frumflutnings Sinfóníuhljómsveitar Íslands og einsöngvara hér á óperu Hafliða Hallgrímssonar „Die Wält der Zwischenfälle“.

Eins og fyrr segir verða 40 tónlistarmenn frá Balkanskaga, undir forystu hins heimsþekkta tónlistarmanns og tónskálds Goran Bregovic, með fjör fyrir brúðkaup og jarðarfarir í Laugardalshöllinni í samstarfi við tónlistarhátíðina Vorblót. Sviðslistum verður gert hátt undir höfði á hátíðinni og leikið á götum úti, í varðskipi, heimahúsum og víðar. Barnaleiksýningin Les Kunz fer norður í Samkomuhúsið á Akureyri og í íþróttahúsið á Egilsstöðum og einn þekktasti enskumælandi leikflokkur heims, Cheek by Jowl, kemur hingað í samstarfi við Þjóðleikhúsið með sýninguna á Cymbeline eftir Shakespeare.

Leiksýningin Partíland verður sýnd í Þjóðleikhúsinu, sýningin Yfirvofandi verður í heimahúsi í Reykjavík og Gyðjan í vélinni verður flutt um borð í varðskipinu Óðni. Sinfóníuhljómsveitin leikur með hinum heimsþekkta píanóleikara Hélène Grimaud, en þeir tónleikar marka lok frönsku menningarkynningarinnar. Af öðrum tónlistarviðburðum má nefna flutning kvartetts Kammersveitar Reykjavíkur á strengjakvartettum Jóns Leifs, tónleikadagskrá Áshildar Haraldsdóttur helgaða verkum Atla Heimis Sveinssonar í Þjóðleikhúsinu og tónleika Hljóðkompanísins og íslenskra og erlendra tónlistarmanna í Hallgrímskirkju. Nánar má kynna sér dagskrána og listamennina með því að smella á tengilinn með fréttinni.

Vefur Listahátíðar í Reykjavík 2007

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Viagra

Meira haldlagt af stinningarlyfjum

10:32 Gríðarleg aukning varð í magni stinningarlyfja sem Tollgæslan lagði hald á við eftirlit í fyrra miðað við árið 2010. Hins vegar liggja ekki fyrir tölur um þróunina það sem af er þessu ári. Meira »
Á meðfylgjandi skjámynd má sjá hvernig hægt er að kalla fram upplýsingar um farsíma í ...

Prófa viðvörunarboð í farsíma

10:27 Viðvörunarkerfi sem getur sent neyðarskilaboð (sms) í farsíma vegna hættu hefur verið þróað til notkunar fyrir almannavarnir hér á landi. Verður kerfið reynt á þriðjudag með því að skilaboð verða send í farsíma í Vík í Mýrdal og nágrenni. Meira »

Skilaði inn 200 auka undirskriftum

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
10:27 „Það er búið að skila inn, í morgun, einhverjum tæpum 200 nöfnum til viðbótar í Reykjavík, þar sem að þetta kom upp,“ segir Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, aðspurður hvort hann sé búinn að skila inn nýjum undirskriftum í stað þeirra sem yfirkjörstjórnirnar í Reykjavík gerðu athugasemdir við. Meira »

Misþyrmdi manni og skildi eftir

Laugavegur.
09:57 Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en hann misþyrmdi manni um fertugt í febrúar sl. í íbúð við Laugaveg. Tveir til viðbótar eru jafnframt ákærðir fyrir að koma manninum ekki til hjálpar þar sem hann lá ósjálfbjarga og lífshættulega slasaður. Meira »

Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.
09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni

Ásmundur Einar Daðason
10:24 „Í aðdraganda þess að Alþingi samþykkti að leggja fram umsókn um aðild að Evrópusambandinu gáfu stjórnmálamenn fyrirheit um það að jafnræðis, hlutleysis og hlutlægni yrði gætt í umræðu um málið“, segir Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Þráðlaust net í Íslandsflugi

09:56 Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
RENAULT MEGANE SPORT TOURER
Renault Megane Sport Tourer Nýskr. 3/2004, ekinn 122 þ. km, bens...
Honda Accord Sport Special Edition 11/07
Ek. 44 þ.km. 2,0L vél, sjálfsk., 17" álfelgur, sumar- og vetrard, hiti í sætum, ...
Íbúð til leigu á Selfossi
Tveggja herbergja íbúð fyrir 50 ára og eldri til leigu á Selfossi. Laus frá 1. ...
Vaktaðu heitapottinn!
Með einföldu kerfi getur þú vaktað hita og straum á heitapottinum. Vertur áhyggj...
 
15262 15263 og 15264 frístunda- og gestahús

Tilboð óskast í þrjú frístunda- og...
Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar reykjavíkur

MENNTUNARSJÓÐUR Mæðrastyrksnefndar Re...
Skólastjóri við grandaskóla
Grunn-/framhaldsskóla
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Samkoma sunnudagur
Félagsstarf
Sunnudagur Kl. 11.00 Samkoma o...