Beinbrotnaði við að falla af snjóbretti

Slys varð á skíðasvæðinu í Tungudal við Ísafjörð síðdegis í gær. Þar féll drengur af snjóbretti og var talinn beinbrotinn. Hann fluttur með sjúkrabifreið á Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði.

Lögreglan á Ísafirði fékk í gær tilkynningu um að bíll hefði farið út af Örlygshafnarvegi. Ökumaður kenndi sér eymsla eftir þetta óhapp en leitaði sjálfur til læknis vegna þess.

Þá var á sunnudagskvöldinu tilkynnt um umferðaróhapp á Djúpvegi í botni Álftafjarðar. Þar hafi bíll runnið út af veginum og hafnað á grjótvarnargarði við veginn. Bíllinn var mikið skemmdur og var fluttur af vettvangi með kranabifreið. Ekki urðu slys á fólki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert