Innlent
| Morgunblaðið
| 21.2.2007
| 5:30
| Uppfært
7:27
Fjögur kíló af kókaíni vandlega falin í pallbíl
Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is
Karlmaður um fertugt situr nú í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á smygli á tæplega fjórum kílóum af kókaíni til landsins en þetta er mesta kókaínmagn sem fundist hefur í einu lagi hér á landi. Tollgæslan í Reykjavík fann það í pallbíl sem verið var að flytja inn um Sundahöfn hinn 17. nóvember í fyrra en maðurinn, sem nú situr í haldi, leysti bílinn ekki úr tolli fyrr en í byrjun þessa mánaðar og var handtekinn nokkrum dögum síðar.
Karlmaður um fertugt situr nú í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á smygli á tæplega fjórum kílóum af kókaíni til landsins en þetta er mesta kókaínmagn sem fundist hefur í einu lagi hér á landi. Tollgæslan í Reykjavík fann það í pallbíl sem verið var að flytja inn um Sundahöfn hinn 17. nóvember í fyrra en maðurinn, sem nú situr í haldi, leysti bílinn ekki úr tolli fyrr en í byrjun þessa mánaðar og var handtekinn nokkrum dögum síðar.
Kókaínið var vandlega falið í bílnum sem var að koma frá Cuxhaven í Þýskalandi. Einnig fundust um 40 grömm af amfetamíni.
Að sögn Ásgeirs Karlssonar, yfirmanns fíkniefnadeildar lögreglu höfuðborgarsvæðisins, var vandlega fylgst með bílnum frá því efnið fannst og þar til maðurinn leysti pallbílinn, sem er af gerðinni Mercedes Benz Sprinter, úr tolli í byrjun þessa mánaðar. Nokkrir dagar voru síðan látnir líða þar til maðurinn var handtekinn 9. febrúar. Hann var í kjölfarið úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald. Í síðustu viku var annar maður handtekinn vegna málsins og sá þriðji var handtekinn í fyrradag. Báðum var sleppt að loknum yfirheyrslum.
Sjö kíló í nóvember 2006
Í málum sem þessu er venjan að lögregla fjarlægi fíkniefnin og komi fyrir gerviefnum í staðinn áður en hinn meinti smyglari fær vöruna í hendur og má fastlega gera ráð fyrir að það hafi einnig verið gert í þessu tilfelli. Ásgeir vildi þó ekki staðfesta það eða greina nánar frá því hvernig rannsókn málsins var háttað að öðru leyti. Eins og fyrr segir fannst kókaínið, sem um ræðir í þessu máli, hinn 17. nóvember. Aðeins fjórum dögum síðar, 21. nóvember, lögðu tollverðir á Keflavíkurflugvelli hald á næstum þrjú kíló í stærstu kókaínsendingu sem fundist hefur á flugvellinum. Það er því óhætt að segja að í nóvember hafi verið skammt stórra högga á milli í fíkniefnamálum.Metmagn fíkniefna
Þessar tvær stóru sendingar vega þungt þegar heildarmagn haldlagðra fíkniefna er skoðað en á síðasta ári var samtals lagt hald á um 12,8 kíló af kókaíni. Þetta er margfalt á við það sem áður hefur fundist á einu ári og má benda á, að á sjö árum, 1999–2005, var alls lagt hald á tæplega 12 kíló. Í fyrra var sömuleiðis lagt hald á metmagn af amfetamíni eða um 46,5 kíló, sem er um fimm kílóum minna en náðist frá 1999–2005.
Í hnotskurn
» Karlmaður um fertugt situr í gæsluvarðhaldi vegna smygls á 4 kílóum af kókaíni til landsins.» Kókaínið fannst 17. nóvember sl. en pallbíllinn, sem efnin voru falin í, var ekki leystur úr tolli fyrr en í byrjun febrúar.
» Alls hafa þrír verið handteknir vegna málsins, sá síðasti í fyrradag.
» Þetta er stærsta sending kókaíns sem fundist hefur hér á landi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin





































