Steingrímur endurkjörinn formaður og Katrín varaformaður VG

Frá landsfundi VG á Grand hóteli.
Frá landsfundi VG á Grand hóteli. mbl.is/ÞÖK

Steingrímur J. Sigfússon var endurkjörinn formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á landsfundi flokksins rétt fyrir kl. 16 í dag og var því fagnað með miklu lófaklappi flokksmanna.

Þá var Katrín Jakobsdóttir endurkjörin varaformaður og Sóley Tómasdóttir kjörin ritari. Engin mótframboð voru til formanns og varaformanns.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir var kjörin nýr gjaldkeri flokksins en þær Sóley voru einnig sjálfkjörnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert