Útlit fyrir minni loftmengun í Reykjavík á morgun

mbl.is/Sverrir

Loftmengun í Reykjavík verður líklega minni á morgun en hún var í dag, þar sem útlit er fyrir að bæti í vind, er haft eftir Önnu Rósu Böðvarsdóttur, heilbrigðisfulltrúa á Umhverfissviði, í fréttatilkynningu frá borginni í kvöld.

Svifryksmengun (PM10) á háannatíma í dag milli 16-17 var 132.1 míkrógrömm á rúmmetra við mælistöðina við Grensásveg.

Meðaltal dagsins á Grensás klukkan 17 í dag var 68.8 míkrógrömm á rúmmetra sem er rétt yfir heilsuverndarmörkum. Á mælistöðinni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum var gildið 37.1 sem er undir mörkum. Enn er óljóst hvoru megin dagurinn í dag (26/2) lendir: undir eða yfir heilsuverndarmörkum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert