Tekinn tvisvar fyrir ofsaakstur á 10 dögum

Sautján ára piltur var stöðvaður fyrir ofsaakstur á Hafnarfjarðarvegi í gærkvöldi en bifreiðin sem hann ók mældist vera á 148 km hraða. Sami piltur, sem fékk bílpróf fyrr í vetur, var tekinn fyrir ofsaakstur á Kringlumýrarbraut fyrir tíu dögum og þá fékk hann 60 þúsund króna sekt.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að svo virðist sem pilturinn hafi ekki enn lært sína lexíu því brot hans í gær hafi verið enn grófara. Lögreglan segir að hann fái nú hinsvegar tíma til að hugsa ráð sitt því pilturinn á tveggja mánaða ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Að auki verður honum gert að greiða 90 þúsund krónur í sekt fyrir þennan vítaverða akstur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert