Hlutfall útlendinga af íbúum hér orðið 6%
Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað mikið hér á landi undanfarin ár. mbl.is/Sigurður Jónsson
Undanfarin áratug hefur hlutfall íbúa með erlent ríkisfang meira en þrefaldast en árið 1996 nam hlutfall erlendra ríkisborgara af heildarmannfjölda 1,8%. Hlutfall erlendra ríkisborgara af heildarmannfjölda er nú ívíð hærra en í nágrannalöndunum.
Hagstofan segir, að í þessu sambandi sé þó rétt að hafa í huga að önnur Norðurlönd eigi sér lengri sögu um mikinn fjölda innflytjenda en Íslendingar og því líklegt að hlutfall innflytjenda, sem öðlast hefur ríkisfang í nýja landinu sé hærra þar en hér.
Eins og verið hefur allmörg undanfarin ár eru Pólverjar fjölmennastir útlendinga hér á landi, 5996. Litháar voru 998, Þjóðverjar 945 og Danir 936.
Allt til ársins 2003 voru konur fleiri en karlar í flutningum til landsins en eftir það hafa karlar verið umtalsvert fleiri. Í árslok 2006 voru 7,4% allra karla erlendir ríkisborgarar en einungis 4,7% kvenna. Árið 2001 var hlutfall erlendra kvenna 3,7% en karla 3,1%.
Á öllum landsvæðum hefur hlutfall erlendra ríkisborgara af heildarmannfjölda hækkað. Hlutfallslega flestir útlendingar eru nú búsettir á Austurlandi en rúmlega fjórðungur íbúa þar er með erlent ríkisfang. Hagstofan segir, að mikil fólksfjölgun á Austurlandi verði raunar nær eingöngu rakin til mikil aðstreymis útlendinga.
Á öðrum landsvæðum er hlutfall útlendinga af heildarmannfjölda nálægt landsmeðaltalinu, hæst á Suðurnesjum (7,4%) og á Vestfjörðum (7%) samanborið við 6% á landsvísu. Hlutfall útlendinga hefur reyndar um allangt skeið verið hærra á Vestfjörðum en annars staðar á landinu. Árið 1996 voru 3,7% íbúa Vestfjarða útlendingar samanborið við 1,8% á landinu í heild og árið 2001 var hlutfallið 5,9% á Vestfjörðum og 3,4% á landinu í heild. Hlutfallslega fæstir útlendingar búa á Norðurlandi (2,9%) og á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur (3,7%).
Bloggað um fréttina
-
Karl Roth Er þetta ekki fínt? -
TómasHa Engin vandamál -
Snorri Bergz Vatn á myllu frjálslyndra
Innlent »
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
- Samningar Lýsingar leigusamningar
- Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna
- Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar
- Góður afli við Kolbeinsey
- Ferðamenn í aðgerð vegna beinbrota
- Kannast ekki við gjaldeyrisbrask með úr
- Agnes vígð 24. júní
- Áhrif bindandi úrskurða undir
- Verður þingað fram í júlí?
-
Kosning um viðræður óvanaleg
- Seldi Rolex úr fyrir skútuvarahlut
- Samherji kærir til Hæstaréttar
- Hraðakstur í Sigtúni
- Skrifuðu ekki undir með eigin hendi
- Þjóðaratkvæðagreiðsla í október
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 28. febrúar 2006, Innlent Nærri 14 þúsund erlendir ríkisborgarar eru með lögheimili hér
- Þriðjudagur, 11. mars 2008, Innlent 6,8% íbúa erlendir ríkisborgarar
- Föstudagur, 22. desember 2006, Innlent Hvergi í Evrópu jafn mikil fólksfjölgun og á Íslandi
- Miðvikudagur, 18. apríl 2007, Innlent Innflytjendur hækka hlutfall vinnufærra
- Föstudagur, 21. desember 2007, Innlent Erlendir ríkisborgarar 6,8% landsmanna
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...




































