Ökumenn á ferð undir áhrifum

Fertug kona lenti í umferðaróhappi á Kringlumýrarbraut í hádeginu í dag. Hún slasaðist ekki en í kjölfarið var konan flutt á lögreglustöð þar sem grunur lék á að hún væri undir áhrifum lyfja. Sama kona var svo stöðvuð við akstur í Lönguhlíð síðdegis í gær en þá þótti einsýnt að hún væri undir áhrifum lyfja. Aksturslag hennar var samkvæmt tilkynningu frá lögreglu stórhættulegt en konan virtist vera við það að sofna þegar að var komið. Hún var færð á lögreglustöð þar sem læknir úrskurðaði að konan væri óhæf til aksturs.

Þá ver um kaffileytið í dag var ekið á tvo kyrrstæða bíla í austurborginni. Tjónvaldurinn í báðum tilvikum, karlmaður á fertugsaldri, hvarf af vettvangi en hann fannst skömmu síðar og reyndist ölvaður. Klukkutíma síðar komu lögreglumenn að leikskóla á höfuðborgarsvæðinu og tóku þar annan ölvaðan ökumann. Þar var á ferð fertug kona sem hugðist sækja barn sitt í leikskólann og aka því heimleiðis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert