Sól í Straumi opnar kynningarskrifstofu

Sól í Straumi opnar kynningarskrifstofu sína í dag sunnudag kl. 16 í Hótel Víking (gegnt Fjörukránni). Fram kemur í tilkynningu að öllum Hafnfirðingum sem og öðru áhugafólki um stækkunarmálið er hjartanlega velkomið á opnunina. Kynningarskrifstofan verður opin frá klukkan 13:00 - 18:00 alla daga fram að kosningum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert