Læknafélagið sakar þingnefndarmenn um að beita óvönduðum vinnubrögðum
Tilkynningin er eftirfarandi:
„Viðskiptaráðuneytið keypti í lok síðustu viku álit af lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík og notaði í þeim tilgangi að hindra að ákvæði um persónuvernd borgaranna næði inn í frumvarp um vátryggingarsamninga. Prófessornum voru ekki fengnar röksemdir Læknafélagsins til skoðunar þannig að álit hans var byggt á röngum forsendum. Engu að síður afhentu fulltrúar Viðskiptaráðuneytisins meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar álitið, vitandi vits um að prófessorinn hafði ekki haft öll gögn málsins til skoðunar. Meirihluti nefndarinnar notaði síðan álitið til að réttlæta töku frumvarpsins úr nefndinni án þess að stjórnarskrárvarinn réttur borgaranna, sem er jafnframt varinn af mannréttindasáttmála Evrópu, væri tryggður.
Læknafélag Íslands sendi efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis bréf dags. 6. mars sl. þar sem vakin var athygli á tilvist Ovíedó samningsins sem er samningur um mannréttindi og líflæknisfræði. Í bréfinu var ekki að finna neinn rökstuðning af hálfu félagsins á því hvernig tilvist samningsins hefði áhrif á úrlausnarefni þingnefndarinnar.
Læknafélag Íslands fundaði með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis að morgni 8. mars og gerði grein fyrir skoðunum sínum og rökstuðningi. Jafnframt sendi félagið öllum nefndarmönnum bréf dags. 8. mars í tölvupósti það sama kvöld og afrit á forsætisráðherra og viðskiptaráðherra. Í því bréfi er það rökstutt hvernig félagið telur ákvæði breytingartillögu nefndarinnar stangast á við mannréttindasáttmála Evrópu og stjórnarskrána. Því er ekki haldið fram í bréfinu að ákvæðið brjóti gegn Ovíedó samningnum heldur er rökstutt með tilvísan í greinargerð með 10. gr. Ovíedó samningsins að ekki sé verið að búa til nýja efnisreglu í Ovíedó samningnum heldur árétta fyrirliggjandi reglu í Mannréttindasáttmálanum og stjórnarskránni.
Viðskiptaráðuneytið kaus að nota álit prófessorsins vitandi það að fram væru komnar röksemdir Læknafélagsins, í bréfi þess dags. 8. mars, sem prófessornum var ekki gefinn kostur á að bregðast við. Prófessorinn fékk aðeins til skoðunar bréf félagsins dags. 6. mars, þar sem eingöngu var um að ræða ábendingu um tilvist Ovíedó samningsins án rökstuðnings. Prófessorinn komst að þeirri niðurstöðu að Ovíedó samningurinn sem slíkur gildi ekki um þá háttsemi sem 82. gr. vátryggingarsamningalaga (hin umdeilda grein) fjallar um eða um vátryggingarstarfsemi yfirleitt. Prófessorinn lýkur bréfi sínu á þann hátt að bréf Læknafélagsins dags. 6. mars ætti ekki að stoppa málið. Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar nýtti sér þessi niðurlagsorð til að taka málið úr nefndinni þrátt fyrir að búa yfir þeirri vitneskju að bréf Læknafélagsins voru tvö og prófessorinn fékk aðeins það fyrra til skoðunar. Það liggur því fyrir að meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, ásamt Viðskiptaráðuneytinu, er meira í mun að tryggja viðskiptahagsmuni vátryggingarfélaganna en stjórnarskrárvarða persónuvernd borgaranna,“ segir í tilkynningu frá Læknafélagi Íslands.





































