Hafna gagnrýni Hags í Hafnarfirði

Álver Alcan í Straumsvík

Álver Alcan í Straumsvík mbl.is/Sverrir

Ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna í Hafnarfirði hafna alfarið gagnrýni Hags Hafnarfjarðar á fyrirkomulag fundar sem félögin standa fyrir í Flensborg þann 28. mars næstkomandi um fyrirhugaða stækkun álversins í Straumsvík.

„Hagur Hafnarfjarðar sakar okkur um ólýðræðisleg og ósanngjörn vinnubrögð vegna þess að samtökin fá ekki að halda framsögu eða hafa fulltrúa í pallborði á fundinum.

Á fundinum verða fluttar fjórar framsögur og að þeim loknum verða pallborðsumræður.

Þeir sem flytja framsögu eru tveir stjórnmálamenn, annar þeirra er fylgjandi stækkun en hinn ekki, og svo fulltrúi frá álverinu og fulltrúi frá Sól í Straumi.

Í pallborði voru svo áætlaðir, auk þeirra sem fara með framsögu, þrír bæjarfulltrúar, einn frá Sjálfstæðisflokki sem er fylgjandi stækkun, einn frá Vinstri grænum sem er á móti og einn frá Samfylkingunni sem mun hvorki beita sér með né á móti stækkun, heldur fjalla um forsendur íbúakosninga um stækkun.

Við sáum ekki ástæðu til að hafa fleiri en fjórar framsögur á fundinum og þar að auki þrjá bæjarfulltrúa í pallborði vegna ótta við tímaskort. Þar að auki töldum eðlilegt að hafa jafnmarga aðila sem eru fylgjandi stækkun og sem eru andvígir stækkun.

Þau rök Hags Hafnarfjarðar að þau séu fylgjandi stækkun á öðrum forsendum en Alcan og ættu skilyrðislaust að fá að koma eru ekki fullnægjandi, enda eru mörg félög andvíg stækkun á öðrum forsendum en Sól í Straumi þó svo að þeim sé ekki boðið. Það er alveg ljóst að ekki geta öll samtök sem láta sig málið varða verið með framsögu eða fulltrúa í pallborði á fundinum, og er það okkar skoðun að fyrirkomulag fundarins sé bæði eðlilegt og lýðræðislegt og höfnum við því alfarið gagnrýni Hags Hafnarfjarðar," að því er segir í sameiginlegu svari frá ungliðahreyfingum stjórnmálaflokkanna í Hafnarfirði.

„Einnig er nauðsynlegt að leiðrétta rangfærslu í málflutningi Hags Hafnarfjarðar, en á heimasíðu þeirra segir: „Upphaflega var okkur boðin þátttaka í fundinum en það boð hefur nú verið dregið til baka vegna mótmæla frá öðrum þátttakendum.“ Þetta er alrangt.

Ástæður þess, að Hagur Hafnarfjarðar fær ekki að vera með framsögu eða fulltrúa í pallborði á fundinum, hafa þegar verið útskýrðar hér að ofan og hafa ekkert með skoðanir annarra þátttakenda að gera.

Þetta eiga forsvarsmenn að vita, en þeim var gert grein fyrir þessu í tölvupósti 11. mars síðastliðinn, þar sem segir að skipulag fundarins sé með þeim hætti að það ættu að vera jöfn hlutföll þeirra sem væru fylgjandi og á móti stækkun.

Vel má vera að Hagur í Hafnarfirði hafi misskilið fyrrgreindan tölvupóst og hefur með þessu svari verið reynt að leiðrétta þann misskilning. Engu að síður saka þeir fundarhaldara um að ganga erinda ákveðinna hópa og útiloki önnur sjónarmið eftir pöntun. Þetta eru alvarlegar ásakanir sem eiga ekki við nokkur rök að styðjast og förum fram á að þær verði leiðréttar hið snarasta.

Vilja ungliðahreyfingarnar koma því á framfæri að vegna mikillar umræðu og áhuga á fundinum, verði hann lengdur og fleiri aðilum boðið fulltrúar í pallborð. Þó verður ekki vikið frá því skipulagi sem upphaflega var ákveðið að hafa jafn marga aðila með stækkun og á móti," að því er segir í tilkynningu frá ungliðahreyfingum stjórnmálaflokkanna í Hafnarfirði.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Lögmenn í Straumsvíkurmálinu.

Aðeins sakfelldir fyrir sterana

11:05 Sævar Sverrisson og Geir Hlöðver Ericsson eru báðir sakfelldir í Straumsvíkurmálinu svonefnda fyrir innflutning á sterum. Dómurinn taldi hins vegar ekki sannað að Geir Hlöðver hafi staðið að innflutningi fíkniefnanna sem voru í sama gámi og sterarnir. Meira »
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

Skoða leiðir um afnám hafta með ESB

10:51 Forsætisráðherra segir að stjórnvöld séu að skoða leiðir til að flýta afnámi gjaldeyrishaftanna í samstarfi við ESB. Jóhanna Sigurðardóttir ræddi málið við Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB, í gær og segist hafa fengið jákvæð viðbrögð. Hún tekur fram að ekkert formlegt samkomulag hafi verið gert. Meira »

„Gengur treglega að fá niðurstöðu“

Jóhanna Sigurðardóttir
10:51 „Varðandi skuldamálin erum við enn að skoða þessi lánsveð og það gengur treglega að fá niðurstöðu í þau mál,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Meira »

Prófa viðvörunarboð í farsíma

Á meðfylgjandi skjámynd má sjá hvernig hægt er að kalla fram upplýsingar um farsíma í ...
10:27 Viðvörunarkerfi sem getur sent neyðarskilaboð (sms) í farsíma vegna hættu hefur verið þróað til notkunar fyrir almannavarnir hér á landi. Verður kerfið reynt á þriðjudag með því að skilaboð verða send í farsíma í Vík í Mýrdal og nágrenni. Meira »

Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni

Ásmundur Einar Daðason
10:24 „Í aðdraganda þess að Alþingi samþykkti að leggja fram umsókn um aðild að Evrópusambandinu gáfu stjórnmálamenn fyrirheit um það að jafnræðis, hlutleysis og hlutlægni yrði gætt í umræðu um málið“, segir Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Meira haldlagt af stinningarlyfjum

Viagra
10:32 Gríðarleg aukning varð í magni stinningarlyfja sem Tollgæslan lagði hald á við eftirlit í fyrra miðað við árið 2010. Hins vegar liggja ekki fyrir tölur um þróunina það sem af er þessu ári. Meira »

Skilaði inn 200 auka undirskriftum

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
10:27 „Það er búið að skila inn, í morgun, einhverjum tæpum 200 nöfnum til viðbótar í Reykjavík, þar sem að þetta kom upp,“ segir Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, aðspurður hvort hann sé búinn að skila inn nýjum undirskriftum í stað þeirra sem yfirkjörstjórnirnar í Reykjavík gerðu athugasemdir við. Meira »

Misþyrmdi manni og skildi eftir

Laugavegur.
09:57 Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en hann misþyrmdi manni um fertugt í febrúar sl. í íbúð við Laugaveg. Tveir til viðbótar eru jafnframt ákærðir fyrir að koma manninum ekki til hjálpar þar sem hann lá ósjálfbjarga og lífshættulega slasaður. Meira »

Þráðlaust net í Íslandsflugi

09:56 Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.
09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Trúlofunar- og giftingahringar
Auk gullhringa eigum við m.a. titanium og tungstenpör á fínu verði. Sérsmíði, fr...
KAUPUM GULL
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfurborðb...
Honda CR-V 2008 Til Sölu
Til sölu Honda Cr-v skráð 10.1.2008 Ekin 90.xxx þ km. Með öllum aukabúnaði nem...
Toyota Corolla Touring 4x4 árg 2000 verð 499.000
Toyota Corolla Touring 4x4 árg 2000 ekinn 166.000 km Tilboðsverð 499.000 staðgr...
 
Hjálpræðisherinn samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Sigurður...
Aðalfundarboð
Fundir - mannfagnaðir
Félag skipstjórnarmanna ...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Framhalds uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...