117 tonna ýta komin til Krísuvíkur

Ýtan komin í vinnu í Krísuvík.
Ýtan komin í vinnu í Krísuvík.

Stærsta jarðýta sem nokkru sinni hefur verið flutt til landsins, af gerðinni Caterpillar D11R og vegur samtals 117 tonn, var flutt í lögreglufylgd sl. föstudagskvöld frá vélasviði Heklu við Klettagarða að Vatnsskarðsnámum við Krísuvík þar sem hún verður notuð við efnisvinnslu.

Samkvæmt upplýsingum frá Heklu var notaður stærsti tengivagn sem til er hérlendis til að koma ýtunni á áfangastað. Einnig var notaður öflugasti dráttarbíl landsins, af gerðinni Scania R580 Heavy Haulage með 250 tonna dráttargetu en bæði vagninn og bíllinn eru í eigu ET flutninga. Heildarlengd ækisins, þ.e. dráttarbílsins og vagnsins með jarðýtunni á, var um 30 metrar og þunginn samtals tæp 160 tonn og deildist hann niður á 13 hásingar. Ýtutönnin, sem vegur tæp 19 tonn, var flutt í annarri ferð ástamt veltiboga ýtunnar því annars hefði jarðýtan rekist upp undir brýr á leiðinni.

Til stóð að flytja jarðýtuna í byrjun síðustu viku en fresta þurfti flutningnum um nokkra daga af tæknilegum ástæðum. Lagt var af stað frá Klettagörðum um kl. 20:30 á föstudagskvöldinu og ekið um Klettagarða og Sæbraut, undir Miklubraut, og suður Reykjanesbraut um Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð og áfram sem leið liggur að Vatnsskarðsnámunum. Tók flutningurinn um 1½ klukkustund og gekk áfallalaust fyrir sig. Í gær, laugardag, var unnið að því að setja tönnina og veltibogann á jarðýtuna og hún gerð klár til notkunar.

Það er fyrirtækið Alexander Ólafsson ehf. sem keypti CAT D11R jarðýtuna og er aðeins vitað um eina slíka vél á hinum Norðurlöndunum og það eru einungis 10-15 þannig jarðýtur í allri Evrópu.

CAT D11 jarðýtan vegur samtals um 117 tonn, þar af er tönnin sjálf um 18,8 tonn, og „ripperinn“ vegur með öllu rúm 10 tonn. CAT D11R er yfir fimm metrar að hæð með veltibogum og 2,6 metrar eru frá jörðu upp í efri brún á beltagangi. Ýtutönnin er yfir sex metra breið og tæpir þrír metrar á hæð og getur rutt á undan sér ríflega 34 rúmmetrum af jarðvegi. Vélarafl CAT D11R er 698kW eða 935 hestöfl undir fullum afköstum og svokallað „flywheel power” er 580 hestöfl.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert