Meintur nauðgari handtekinn

Maður sem grunaður er um að hafa nauðgað konu á Hótel Sögu um helgina var handtekinn í gærkvöldi og er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann verður yfirheyrður í dag.

Kona leitað aðstoðar hjá starfsfólki hótelsins aðfaranótt laugardags, og sagði sér hefði verið nauðgað á salerni í kjallaranum. Starfsfólk hótelsins reyndi að koma í veg fyrir að maðurinn færi af vettvangi, en honum tókst að komast undan og hvarf út í myrkrið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert