Lenti í Keflavík vegna veikinda farþega

Farþegaflugvél af gerðinni Airbus A340, var snúið til Keflavíkur í gær vegna veikinda flugfarþega um borð. Farþeginn hafði fengið vægt hjartaáfall og ákvað flugstjórinn að lenda í Keflavík. Farþeginn var fluttur á sjúkrahús til skoðunnar. Flugvélin var að koma frá París á leið til Los Angeles.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert