Tímamótum fagnað við gerð Héðinsfjarðaganga
Frá Héðinsfirði. mbl.is/Þorkell
Samgönguráðherra sprengdi fyrstu sprengjuna við hátíðlega athöfn Siglufjarðarmegin í september sl. Nú verður hinsvegar fagnað Ólafsfjarðarmegin.
Fram kemur í fréttatilkynningu frá verktakafyrirtækinu Háfell ehf. að verkinu skal að fullu lokið í desember 2009, en heildarlengd ganganna verður 11 km.
Framkvæmdir á verkstað hófust í júní sl. við gröft á forskeringum við gangamunna í Siglufirði og Ólafsfirði. Í september hófst gangagerð frá Siglufirði og í október frá Ólafsfirði. Nú starfa 83 menn á svæðinu af hálfu verktaka og þar af eru 13 tæknimenn.
Héðinsfjarðargöng er stærsta verkefni sem Vegagerðin hefur boðið út og var verksamningur milli Vegagerðarinnar og verktakans Metrostav a.s. og Háfell ehf undirritaður á Siglufirði þann 20. maí sl. Upphæð verksamnings er um 5,7 milljarðar króna en heildarkostnaður verksins er áætlaður rúmir 7 milljarðar.
Framkvæmdin er liður í að bæta samgöngur, auka umferðaröryggi og tengja Siglufjörð við Eyjafjarðarsvæðið og styrkja þannig byggð á svæðinu. Framkvæmdin mun stytta leiðina milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar úr 62 km í um 15 km miðað við leið um Lágheiði og úr 234 km í 15 km miðað við leið um Öxnadalsheiði.
Jarðgöngin verða tvíbreið, um 3,7 km löng milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar og um 6,9 km löng milli Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar. Við alla gangamunna verða steyptri vegskálar, samtals um 450 m að lengd. Heildarlengd ganga verður því ríflega 11 km.
Verkið nær ennfremur til lagningar 2 km langs aðkomuvegar í Siglufirði, um 0,6 km langs vegar í Héðinsfirði og um 0,6 km langs vegar í Ólafsfirði. Einnig er innifalin breikkun á 0,7 km löngum vegarkafla í Siglufirði, brú yfir Héðinsfjarðará og minni háttar vegtengingar í Siglufirði, Héðinsfirði og Ólafsfirði.
Innlent »
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
- Samningar Lýsingar leigusamningar
- Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna
- Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar
- Góður afli við Kolbeinsey
- Ferðamenn í aðgerð vegna beinbrota
- Kannast ekki við gjaldeyrisbrask með úr
- Agnes vígð 24. júní
- Áhrif bindandi úrskurða undir
- Verður þingað fram í júlí?
-
Kosning um viðræður óvanaleg
- Seldi Rolex úr fyrir skútuvarahlut
- Samherji kærir til Hæstaréttar
- Hraðakstur í Sigtúni
- Skrifuðu ekki undir með eigin hendi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 18. janúar 2007, Innlent Vinnu við Héðinsfjarðargöng miðar ágætlega
- Laugardagur, 22. mars 2008, Innlent Ekki dónaleg sýn út í Héðinsfjörð
- Þriðjudagur, 21. mars 2006, Innlent Lægsta tilboð í Héðinsfjarðargöng um 5,7 milljarðar
- Fimmtudagur, 3. janúar 2008, Innlent Hálfnað að grafa Héðinsfjarðargöng
- Miðvikudagur, 21. nóvember 2007, Innlent Framkvæmdir við Héðinsfjarðargöng komnar á gott skrið eftir tafir
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...




































