Fjölga á dagvistarrýmum aldraða um 75
Unnið er að byggingu hjúkrunarheimilis við Suðurlandsbraut mbl.is/Sverrir Vilhelmsson
Ákvörðun ráðherra felur í sér að dagvistarrýmum verður fjölgað um 75 sem er um 11% fjölgun dagvistarrýma en þau voru samtals um 700 á landinu öllu í lok árs 2006.
Af þeim 75 dagvistarrýmum sem við bætast verða 44 rými sérstaklega ætluð heilabiluðum og verður stærstur hluti þeirra á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir voru samtals 129 dagvistarrými sérstaklega ætluð heilabiluðum og því er hér um 34% aukningu að ræða. Almennu dagvistarrýmunum verður hins vegar komið fyrir víða um land og má geta þess að við bætast 11 staðir þar sem ekki hafa áður verið dagvistarrými fyrir aldraða. Með þessu móti verður dagvistun fyrir aldraða að aðgengilegu úrræði um allt land. Hvíldarrýmum verður einnig fjölgað og bætast við 23 slík rými vítt og breitt um landið, samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu.
Í ráðuneytinu er nú unnið að gerð áætlunar um staðsetningu þessara rýma og er stefnt að því að ákvörðun þar um liggi fyrir á næstu dögum.
Ennfremur liggur fyrir ákvarðanir um byggingu nýrra hjúkrunarheimila sem munu fjölga rýmum samtals um 374 á næstu 4 árum sem er um 15% aukning hjúkrunarrýma í landinu.
Þetta eru 200 rými á tveimur nýjum hjúkrunarheimilum í Reykjavík og 174 rými víðs vegar um land. Heimilin sem bætast við í Reykjavík eru annars vegar hjúkrunarheimili við Suðurlandsbraut sem reist verður í samstarfi við Reykjavíkurborg og hins vegar á Lýsislóðinni í samstarfi við Reykjavíkurborg og Seltjarnarnesbæ.
Þá er um að ræða 20 ný hjúkrunarrými í Árborg, 44 í Kópavogi, 20 í Mosfellsbæ, 30 í Reykjanesbæ, 30 í Hafnarfirði, 10 í Ísafjarðarbæ og 20 í Garðabæ, samkvæmt tilkynningu.
Bloggað um fréttina
-
Anna Gísladóttir Hvað er eiginlega að þessu liði ? -
Helgi Jóhann Hauksson Miklar gleðifréttir ... -
Baldvin Jónsson Þetta er náttúrulega bara einfaldlega óþolandi ástand..... -
Níels A. Ársælsson. Kosningabrella Framsóknar.
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 12. maí 2006, Innlent Hjúkrunarrýmum fjölgar á Suðurlandi
- Fimmtudagur, 13. júlí 2006, Innlent Veita á heimahjúkrun allan sólarhringinn að sögn heilbrigðisráðherra
- Miðvikudagur, 3. maí 2006, Innlent Hjúkrunarrýmum fjölgað á Akranesi
- Þriðjudagur, 4. apríl 2006, Innlent Sérhæfð geðhjúkrunardeild fyrir aldraða opnuð á næsta ári
- Mánudagur, 10. apríl 2006, Innlent Vantar meira fjármagn til málefna aldraðra
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































