Samningur um útvarpsþjónustu í almannaþágu undirritaður

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Páll Magnússon við undirritunina í dag.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Páll Magnússon við undirritunina í dag.

Í dag skrifuðu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Páll Magnússon útvarpsstjóri undir samning um útvarpsþjónustu í almannaþágu. Mun samningurinn ásamt viðaukum taka gildi þann 1. apríl n.k. þegar nýsamþykkt lög um Ríkisútvarpið ohf. taka jafnframt gildi.

Markmið samningsins er að lýsa nánar tilgangi og hlutverki Ríkisútvarpsins og þeim kröfum sem gerðar eru til félagsins á grundvelli laganna.

Fram kemur í fréttatilkynningu frá menntamálaráðuneytinu að RÚV gegni mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi og í samningnum sé útvarpsþjónusta í almannaþágu ítarlega skilgreind og afmörkuð frá annarri starfsemi á fjölmiðla- og samkeppnismarkaði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert