Hálka veldur umferðaröngþveiti í Reykjavík

Þessi bíll lenti utan vegar í Garðabænum.
Þessi bíll lenti utan vegar í Garðabænum. mbl.is/ÞB

Mikil hálka er í höfuðborginni og hafa vandræði skapast af því í umferðinni. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins urðu tíu árekstrar með stuttu millibili upp úr klukkan átta í morgun og í það minnsta tveir bílar hafa oltið og lent utan vegar.

Margir árekstranna urðu í Austurborginni og á Vesturlandsvegi og Suðurlandsvegi. Stór vöruflutningabíll fór yfir hringtorg á Vesturlandsvegi og stakkst ofan í skurð handan við það.

Lögreglan hefur ekki upplýsingar um nein alvarleg slys á mönnum. Ein kona var þó flutt á slysadeild LSH með minniháttar áverka eftir að jeppi hennar lenti utan vegar í Garðabæ.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert