Ólíklegt að villtir fuglar beri smit

Flest bendir til þess að fuglaflensa dreifist ekki með villtum fuglum, að sögn Yanns Kolbeinssonar, líffræðings hjá Náttúrustofu Suðurlands.

Því óttast menn síður nú en áður að þessi sjúkdómur berist með farfuglum hingað til lands.

„Flest tilfelli fuglaflensu má rekja beint eða óbeint til alifugla sem þýðir að hún dreifist milli landa aðallega af mannavöldum," sagði Yann Kolbeinsson.

Geta hugsanlega borið veikina skemmri leið

Hann sagði að vissulega gætu villtir fuglar smitast af veikinni og borið hana skemmri leið. Margt benti þó til þess að þeir væru ekki aðalsmitberar fuglaflensu á milli landa.

Þá benti Yann á að veikir fuglar ættu væntanlega erfitt með að komast yfir hafið til Íslands. Því væri landið á vissan hátt í sóttkví.

Í fyrravor var fylgst vel með farfuglunum þegar þeir komu til landsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert