Samþykkt að veita sjúklingum sem háðir eru öndunarvélum þjónustu

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að koma á tilraunaverkefni til tveggja ára um svonefnda notendastýrða þjónustu sem mun taka til fjögurra til sex einstaklinga sem þurfa á öndunarvélaþjónustu að halda vegna sjúkdóma eða slysa. Þjónustan gerir þeim kleift að fara ferða sinna og taka virkan þátt í samfélaginu með hjálp aðstoðarmanna í stað þess að vera bundnir öndunarvél á hjúkrunarstofnun, samkvæmt tilkynningu.

Félagsmálaráðherra og heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra tilkynntu um ákvörðun ríkisstjórnarinnar á ráðstefnunni mótum framtíð um félagslega þjónustu í dag.

Ákvörðunin byggist á tillögum nefndar um notendastýrða þjónustu sem starfar á vegum félagsmálaráðuneytisins. Þessi tilhögun tíðkast orðið nokkuð í nágrannalöndum okkar, einkum á Norðurlöndunum, og er upprunnin í Danmörku.

Þjónustan verður einkum veitt á vettvangi félagsmálaráðuneytisins en heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið annast fræðslu og þjálfun starfsfólks og útvegar nauðsynlegan tækjabúnað.

„Þetta varðar sjálfræði, lífsgæði og mannlega reisn og er kærkomin viðbót við þá fjölbreyttu þjónustu sem veitt er þeim sem búa við fötlun hér á landi“, sagði Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra. „Þetta er stórkostlegur áfangi í því að veita tilteknum hópi einstaklinga tækifæri til að búa áfram heima en ekki á stofnun“, sagði Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert