Líkaði illa að vera vísað út af skemmtistað

Lögreglan á Akureyri þurfti að hafa afskipti af tveimur mönnum í nótt vegna þess að þeim hafði verið vísað út af skemmtistöðum á Akureyri vegna óláta. Mennirnir voru ósáttir með að hafa verið vísað út og létu vel í sér heyra en róuðu sig stuttu síðar.

Lögreglumenn á Akureyri stöðvuðu fjölda ökumanna í skipulögðu eftirliti til að kanna með ástand og ökuréttindi ökumanna síðastliðna nótt, en enginn reyndist undir áhrifum áfengis. Mikil umferð var til Akureyrar í gærkvöldi og nótt og greinilegt á þeim sem lögregla stöðvaði að fólk hugðist fara á skíði á Akureyri um páskana.

Fjórir voru teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Akureyri í gærkvöldi og nótt, sá sem hraðast ók var á 119 km/klst, þar sem hámarkshraði er 90 km/klst.

Tilkynnt var um innbrot í dráttarvél sem að var lagt við verkstæðisaðstöðu á Gleráreyrum í nótt. Brotin var rúða í dráttarvélinni og geislaspilari tekinn. Tilkynnt var um stórt grjót á Ólafsfjarðarvegi við Sauðanes. Lögreglumenn fóru á staðinn og náðu að velta því af veginum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert