Nær að sprengja Ísland en Íran

Það væri miklu nær að sprengja Ísland en Íran, segir bandarískur háskólaprófessor.

Það væri miklu nær að sprengja Ísland en Íran, segir bandarískur háskólaprófessor. mbl.is/Þorkell

Stjórnmálafræðiprófessor við Princetonháskóla í New Jersey skrifar í dag háðsádeilugrein á vef skólans þar sem hann leggur til að í stað þess að gera sprengjuárás á Íran, sem gæti orðið snúið mál, ætti Bandaríkjaher frekar að sprengja Ísland í tætlur. Segir hann að slíkur hernaður gæti rutt nútímanum braut á Íslandi, verið hagfelldur fyrir bandaríska hagkerfið, sýnt fram á hernaðarmátt Bandaríkjanna og sé mun ódýrari en hernaður í Íran.

Prófessorinn, Uwe E. Reinhardt, segir að bandaríska íhaldsmenn langi til að sprengja Íran en það væri mun betri hugmynd að sprengja Ísland.

„Hvers vegna Ísland, af öllum stöðum?" spyr prófessorinn. „Hvers vegna ekki eitthvað annað land, svo sem Pakistan eða Nepal. Ég skal rökstyðja það. Í fyrsta lagi er Ísland ákjósanlegt skotmark. Annað hvort hittir maður það eða maður hittir sjóinn. Þetta er ekki svona einfalt ef verið er að sprengja á svæðum þar sem öll lönd líta eins út úr lofti. Ef varpað er sprengjum á lönd, sem Bandaríkjamenn eiga ekki í stríði við, gætu þau misskilið tilganginn og, það sem verra er, kallað fram ygglibrúnina á Condoleezzu Rice.

Í öðru lagi er Ísland mun nær en Íran. Flugmennirnir okkar gætu lagt af stað um morguninn, sprengt Ísland um hádegi, flogið til Englands og skroppið í leikhús eða á krá um kvöldið, hlaðið vélararnar næsta dag með hergögnum sem hinn hjálpsami Tony Blair geymir fyrir okkur, sprengt Ísland aftur á heimleiðinni og verið komnir heim fyrir kvöldmat. Þetta er hagkvæm aðferð til að stunda stríð," segir Reinhardt.

Hann færir frekari rök fyrir þessum hernaði og bætir við, að í kjölfarið væri hægt að veita Íslandi uppbyggingarstyrk, t.d. 274% af 14 milljarða dala landsframleiðslu Íslands en slík upphæð sé smámunir í Bandaríkjunum. Síðan væri hægt að byggja nákvæma eftirlíkingu af Reykjavík eins og hún var fyrir sprengjuárásirnar en nota bandarískan efnivið. Þá fengju bandarísk fyrirtæki, svo sem Halliburton eða Bechtel, einkarétt á að endurbyggja Reykjavík og reisa risastórt sprengjuskýli í fjöllunum sunnan við Reykjavík fyrir árásina til að skýla íbúum og ómetanlegum listaverkum Íslands fyrir sprengjuregninu. Þetta myndi hækka hagnað fyrirtækjanna og gengi hlutabréfa þeirra og hluthafarnir myndu launa forstjórunum með enn hærri launatékkum. „Eins og The Wall Street Journal myndi segja: Aukinn gróði gerir Ameríku öflugri," segir prófessorinn.

Þá segir Reinhardt, að stríð á Íslandi væri mjög heppilegt frá sjónarhóli bandarískra fjölmiðla, sem gætu sent fréttamenn til Reykjavíkur áður en árásin hæfist og lýst sprengjuregninu í smáatriðum.

„Við verðum að viðurkenna, að þótt við séum friðsöm þjóð sem vill aðeins flytja frábæra lífshætti okkar til annarra landa þá þykir okkur gaman að offors- og ógnarárásasjónvarpsefninu okkar. Það væri jafnvel hægt að gera offors- og ógnarárás á Ísland meira spennandi en American Idol."

Lokarökin fyrir árásinni á Ísland segir prófessorinn vera þau, að hægt væri að fá önnur ríki, svo sem Japan og Kína, til að fjármagna aðgerðirnar eins og þau hafi fjármagnað aðgerðir Bandaríkjanna í Afganistan. Hugsanlega þurfi börn núverandi bandarískra skattborgara að borga erlendu skuldirnar einhvern tímann síðar en krakkar hafi ekki kosningarétt og því þurfi ekki að taka tillit til þeirra þegar opinber útgjöld Bandaríkjanna eru ákveðin.

Grein Uwe E. Reinhardts

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Aratúnið Málið spratt upp eftir skrif um Aratúnsfjölskylduna á bloggsíðu.

Leitar hjálpar vegna Aratúns-dóms

18:33 „Þetta er klárlega prófmál og mun hafa áhrif á önnur mál í framtíðinni þar sem einhver er ósáttur við ummæli á netinu," segir Andrés Helgi Valgarðsson, sem tapaði í vetur meiðyrðamáli vegna s.k. Aratúnsmáls. Andrés hyggst áfrýja til Hæstaréttar en ræður illa við málskostnaðinn og leitar eftir aðstoð Meira »

Vilja lækka olíugjald

18:32 Þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggja í dag fram frumvarp til laga þar sem lagt er til að olíugjald verði lækkað umtalsvert.  Meira »

Unglingspilts enn leitað

Guðmundur Árnason.
18:19 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar lýsingu eftir Guðmundi Árnasyni, sem hvarf er hann var á ferð í Kópavogi þann 17. febrúar sl. Meira »

Fær frest til þriðjudags

Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
17:44 Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur samþykkt að veita Gunnari Andersen, forstjóra FME, lengri frest til þess að andmæla fyrirhugaðri uppsögn. Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður FME, segir að Gunnar fái frest til klukkan 16 næstkomandi þriðjudags. Meira »

„Enginn greiði gerður með þessu klúðri“

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
16:37 „Það er öllum að verða augljóst að málsmeðferð þessa máls er klúður,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag um afgreiðslu Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Ósáttur við að vera þjófkenndur

Ferðamenn leggja leið sína í Landmannalaugar jafn vetur sem sumar. Mynd úr safni
18:17 Guðmundur Gústafsson, einn þeirra sem var í hópi jeppamanna í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum um helgina, er afar ósáttur við að hópurinn sé þjófkenndur en gps-staðsetningartæki var stolið í skálunum um helgina. Meira »

Verslunarstjóri dæmdur fyrir umboðssvik

BYKO.
16:37 Hæstiréttur dæmdi í dag fyrrverandi verslunarstjóra BYKO á Selfossi í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að umboðssvik. Maðurinn var talinn hafa komið því til leiðar að fyrirtækið 5x fékk afhentar vörur frá versluninni árið 2007 án þess að staðgreiða þær. Meira »

Leiga í félagslegu húsnæði hækkaði um 28%

16:32 Verð á húsaleigu fyrir félagslegar íbúðir hækkaði um 28,6% á tímabilinu 2007 til 2011. 14.055 fengu húsaleigubætur á síðasta ári og 3.756 fengu sérstakar húsaleigubætur. Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar alþingismanns. Meira »

Lýsa eftir ræningja

Spilakassar.
16:30 Lögreglan á Akureyri óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á manni sem framdi rán í Fjölumboðinu við Geislagötu á Akureyri í hádeginu í dag. Um er að ræða spilastað Gullnámunnar. Maðurinn komst af vettvangi með eitthvað af fjármunum úr sjóðsvél staðarins. Meira »

Mæling á PSA ekki áreiðanleg

Krabbameinsrannsóknir.
16:16 Mæling á PSA-mótefni í blóði gefur ekki nægilega áreiðanlegar upplýsingar til að hægt sé að mæla með aðferðinni til skimunar eftir krabbameini í blöðruhálskirtli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landlækni. Meira »

Svartir sauðir á hálendinu

Landmannalaugar
16:27 Stjórn Ferðafélags Íslands íhugar að loka öllum skálum félagsins yfir vetrartímann vegna slæmrar umgengni í þeim. Um liðna helgi voru þrír hópar í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum og var lítill svefnfriður í skálanum vegna skrílsláta eins hópsins. Meira »

Vilja starfshóp um póstverslun

Íslandspóstur.
16:03 Ellefu þingmenn úr fjórum flokkum hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fela forsætisráðherra að setja á fót starfshóp sem athugi þróun og regluverk í póstverslun hér og erlendis og geri tillögur um lagabreytingar og aðrar ráðstafanir til að skapa póstverslun viðeigandi samkeppnisstöðu. Meira »

Icesave hefði sett Ísland á hausinn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
16:00 Formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlausson, sagði á Alþingi í dag að skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um afföll íbúðarlána og kostnað við niðurfærslu lána staðfesti það, væru forsendur hennar réttar, að ef Icesave-samningarnir sem ríkisstjórnin hefði reynt að koma í gegn hefðu verið samþykktir hefði það leitt til gjaldþrots íslenska ríkisins. Meira »

Ítarlegar upplýsingar um húsaleiguverð

15:46 Þjóðskrá Íslands birtir í fyrsta sinn á morgun upplýsingar um húsaleigu eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu. Um samstarfsverkefni Þjóðskrár og Íbúðalánasjóðs er að ræða en sjóðurinn á 700 leiguíbúðir. Meira »

Rannsókn nauðgunarmála lokið

Egill Einarsson
15:31 Rannsókn lögreglu höfuðborgarsvæðisins á nauðgunarkærum á hendur Agli Einarssyni er lokið. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, staðfesti þetta við fréttavef Morgunblaðsins. Málið er því að nýju komið ákærusviðs lögreglunnar. Meira »

Tíðinda að vænta innan tíu daga

Huang Nubo
15:49 „Ég vona að við munum hafa einhver tíðindi innan tíu daga,“ segir Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, spurður um mögulegar fjárfestingar kínverska fjárfestisins Huang Nubo á Norðausturlandi. Hann bætir við að rík áhersla sé lögð á að sem mest sátt náist um málið. Meira »

Lagði mat á vegslóða

Utanvegaakstur er vaxandi vandamál.
15:33 Akstur utan óskilgreindra vega er alvarlegt vandamál hér á landi. Til hefur orðið víðáttumikið kerfi vegslóða án þess að farið hafi verið eftir skipulagsferlum. Gísli Rafn Guðmundsson, nemandi við Landbúnaðarháskóla Íslands vann síðastliðið sumar verkefni sem ber heitið „Skipulagsferlar og matsskalar vegna vegslóða“. Meira »

Óljóst um hvað málið snýst

Þórhildur Þorleifsdóttir, fyrrverandi fulltrúi í stjórnlagaráði.
15:06 „Hvað það varðar að við komum að þessu aftur þykir mér það alls ekki afleit hugmynd,“ segir Þórhildur Þorleifsdóttir, sem sæti átti í stjórnlagaráði á síðasta ári, en Alþingi ákvað í gær að vísa frumvarpi ráðsins að nýrri stjórnarskrá aftur til þess til umfjöllunar. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu HondaShadow 750 Spirit
Flott Honda til sölu.Ekin aðeins 8000 km Fæst á fínu verði. Á sama stað tveir ...
3 SÆTA SMOGEN SÓFI
3 sæta Smogen sófi. Keyptur í maí 2011. Nýr 15...
Heil/parta nudd sniðið að þínum þörfum.
Lúxus dekur þar sem þú velur áherslusvæði t.d. herðar, herðablöð, háls, axilir, ...
FERMINGARGJÖFIN Í ÁR
Fermingargjöfin í ár. Tískuúr, margir litir. Verð frá kr. 3.500,-   Skarthúsið, ...
 
Skólameistarar: fjölbrautaskóli suðurnesja, fjölbr. suðurlands
Sérfræðistörf
Laus embætti hjá mennta- og menni...
Framkvæmdastjóri nýrrar stoð- og þekkingarstofnunar
Stjórnunarstörf
Sameinuð sjálfseignarstofnun er stofnuð ...
Lektor í vistvænni raforkuverkfræði / endurnýjanleg orka
Háskólakennsla
Tvö störf við Verkfræði- og náttúruvís...
Bifreiðaviðgerðarmaður
Iðnaðarmenn
Bifreiða-viðgerðarmaður Bílaleiga óskar ...