Mikil viðbrögð við grein háskólaprófessors um sprengjuárás á Ísland
Uwe Reinhardt.
Sagt var frá greininni á Fréttavef Morgunblaðsins og fleiri fjölmiðlum í gærmorgun. Princetonvefurinn segir, að yfir 4000 manns hafi lesið greinina á vef Morgunblaðsins og margir bloggað um hana og tugir hafi sent Reinhardt og Princetonvefnum tölvupóst.
Haft er eftir Reinhardt, að hann hafi skrifað greinina sem gagnrýni á vilja bandarískra stjórnvalda til að sprengja Íran. „Ég var í raun að gagnrýna ný-íhaldsmennina og stríðsæsingamennina," segir hann. „Sú hugmynd, að hægt sé að ráðast með sprengjuregni á land á borð við Íran og bjarga með því heiminum er fáránleg."
En nokkrir þeirra Íslendinga, sem brugðust við grein Reinhardts, lýstu þeirri skoðun, að Bandaríkjamenn kynnu að taka ummæli prófessorsins alvarlega.
„Hvergi í heiminum er til heimskara fólk en í Bandaríkjunum," skrifaði Ólafur Skorrdal í tölvupósti til Reinhardts. „Það er aldrei að vita nema þeir taki háðsyrði þín alvarlega og telji, að gera þurfi eitthvað í málinu."
Aðrir hrósuðu Reinhardt fyrir greinina og einn benti m.a. á viðbótarröksemd fyrir því að Ísland væri ákjósanlegt skotmark, þá að allir Íslendingar tali ensku ágætlega og gætu því veitt bandarískum fjölmiðlum viðtöl án þess að notast við túlka. Hanna Björk, sem býr í Teheran, segir í tölvupósti, að hún hafi legið dátt við lestur greinarinnar en hið sorglega sé, að þar sé verið að lýsa raunveruleikanum. „Það er svo fáránlegt að lesa um stríð á Íslandi að það verður hlægilegt. En í raun er jafn fáránlegt að hefja stríð í þessum Miðausturlöndum," segir hún.
Haft er eftir Reinhardt að honum hafi þótt skemmtilegt að lesa þessa tölvupósta. En það sem þeir sýni í raun sé, að aðrar þjóðir séu hræddar við Bandaríkin. „Mér þykir hins vegar leitt, ef einhverjir Íslendingar telji að ég líti niður á þá og ég ætla að reyna að skrifa grein í íslenskt dagblað og reyna að útskýra málið," segir Reinhardt.
Reinhardt segist sjálfur vera afar hrifinn af Íslandi enda hafi hann hlustað á íslensk ævintýr lesin þegar hann var barn og oft millilent á Íslandi á leið til Evrópu.
Bloggað um fréttina
-
Níels A. Ársælsson. Kjöldraga dýrið -
Guðjón Sigþór Jensson Mögnuð samlíking -
Charlotta R. M. múhahahaha..... -
Þorsteinn Gunnarsson Við erum nú meiri húmorslausu aumingjarnir! -
Ragnar Bjarnason Af hverju .... -
Guðmundur Auðunsson Hjálp! -
Kári Harðarson Mætti ég koma með smá tillögu? -
Brosveitan - Pétur Reynisson Ísland, best í heimi??? -
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson Yfirdrifið.....?
Innlent »
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
- Samningar Lýsingar leigusamningar
- Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna
- Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar
- Góður afli við Kolbeinsey
- Ferðamenn í aðgerð vegna beinbrota
- Kannast ekki við gjaldeyrisbrask með úr
- Agnes vígð 24. júní
- Áhrif bindandi úrskurða undir
- Verður þingað fram í júlí?
-
Kosning um viðræður óvanaleg
- Seldi Rolex úr fyrir skútuvarahlut
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 10. apríl 2007, Innlent Biður þjóðina afsökunar
- Mánudagur, 9. apríl 2007, Innlent Nær að sprengja Ísland en Íran
- Þriðjudagur, 27. nóvember 2007, Innlent Ekkert eftirlit með kafbátum
- Þriðjudagur, 29. apríl 2008, Innlent Tímabært að sækja um ESB-aðild
- Föstudagur, 20. október 2006, Innlent Ósprungin sprengja Þórs Whitehead segir Ögmundur Jónasson
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu




































