20% meiri skuldir

Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is
Skuldir fólks, sem leitaði til Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna í fyrra vegna fjárhagsvandræða, voru yfirleitt mun þyngri en á árinu á undan eða um rúmlega 20% meiri en 2005 skv. upplýsingum Ástu Sigrúnar Helgadóttur, forstöðumanns Ráðgjafarstofu. Rúmur helmingur þessara skulda er af fasteignaveðlánum.

Veikindi eru algengasta ástæða fjárhagserfiðleika en á seinasta ári nefndu einnig rúmlega 16% vankunnáttu í fjármálum sem helstu ástæðu erfiðleikanna. "Árið 2006 var mjög svipað árinu 2005. Einstæðar mæður eru stærsti einstaki hópurinn sem leitaði til okkar eða um þriðjungur viðskiptavina okkar," segir Ásta. Næststærsti hópurinn er einhleypir karlar. Að sögn Ástu vinnur nemi í félagsráðgjöf um þessar mundir að athugun á ástæðum þess að einhleypir karlar sem leita til stofunnar eiga í fjárhagsvanda.

Fram kemur í ársskýrslu Ráðgjafarstofu að fleiri einstaklingar sem leita sér ráðgjafar vegna fjárhagsvandræða búa í leiguhúsnæði en þeir sem búa í eigin húsnæði. Einnig kemur fram að flestir sem leita til stofunnar eru á aldrinum 20 til 40 ára. 75% þeirra sem leita aðstoðar búa á höfuðborgarsvæðinu.

Starfsmenn Ráðgjafarstofunnar eru í daglegum samskiptum við fólk sem leitar ráðgjafar hjá henni og vita því hvar skórinn kreppir og hafa lagt fram ákveðnar tillögur til úrbóta, að sögn Ástu.

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra lýsti því yfir í ávarpi sínu á ársfundi Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna í gær að hann vildi skoða kosti þess að setja sérstaka löggjöf um úrræði vegna greiðsluerfiðleika. Mikilvægt væri að tryggja skuldara samningsrétt, rétt til að halda eftir ákveðnu lágmarki tekna til að geta séð sér farborða og heimilisrétt sem tryggir húsnæði sem uppfyllir lágmarkskröfur.

Þörf á nýjum úrræðum

Félagsmálaráðherra kveðst hafa rætt hugmyndir þessa efnis við viðskiptaráðherra sem skipaði nefnd 5. mars sl. til að vinna drög að frumvarpi um greiðsluaðlögun einstaklinga. Á nefndin að hafa hliðsjón af norrænni löggjöf og reynslu af lagaframkvæmd um sambærileg úrræði.

Jafnframt lýsti félagsmálaráðherra því yfir á fundinum að hann vildi beita sér fyrir áframhaldandi starfsemi Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna.

Fram kom í máli hans að þörf væri fyrir ný úrræði vegna lausnar á greiðsluerfiðleikum einstaklinga til frambúðar. "Ráðgjafarstofan hefur m.a. vakið athygli á fjölgun viðskiptavina undanfarin ár meðal ungs fólks. Einnig á stöðu einstæðra mæðra, sem hafa verið fjölmennasti hópur viðskiptavina frá upphafi starfs Ráðgjafarstofu, og stöðu einhleypra karla með háar skatta- og meðlagsskuldir en fjöldi þeirra meðal viðskiptavina hefur farið stigvaxandi milli ára," sagði Magnús.

"Ég tel að skoða eigi kosti þess að setja sérstaka löggjöf um úrræði vegna greiðsluerfiðleika svipað og frændur okkar á Norðurlöndunum eru með langa reynslu af. Mikilvægt er að mínu viti að tryggja skuldara viss réttindi meðan unnið er í greiðslu skulda samkvæmt sérstöku samkomulagi. Nauðsynlegt er að tryggja skuldurum samningsrétt, rétt til að halda eftir ákveðnu lágmarki tekna til að geta séð sér farborða og heimilisrétt sem tryggir húsnæði sem uppfyllir lágmarkskröfur."

Í hnotskurn
» Einstæðar mæður eru stærsti hópurinn sem leitar ráðgjafar í fjárhagserfiðleikum.
» Hlutverk Ráðgjafarstofu er að veita fólki sem á í verulegum greiðsluerfiðleikum og komið er í þrot með fjármál sín endurgjaldslausa ráðgjöf.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kirkjugarðar geta varla starfað áfram

11:20 Kirkjugarðar geta ekki starfað áfram nema einingarverðið á hvern grafreit verði uppfært eins og það á að vera án allrar skerðingar,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ) og forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Meira »
Nýsköpunarsjóði er ætlað að vera virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum.

Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér

11:19 Nýsköpunarsjóður er í þröngri stöðu og getur ekki beitt sér sem skyldi sem virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum. Þetta sagði Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu á ársfundi sjóðsins. Meira »

„Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
11:18 „Ég er að segja að hann sé að segja ósatt um það að ég gangi hér á eftir þingmönnum og segi þeim hvernig þeir eigi að greiða atkvæði. Auðvitað gera þeir það sjálfir eins og þeir vilja. Ég hef ekki beitt mér á einn eða annan hátt í þessu máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi í dag. Meira »

Skoða leiðir um afnám hafta með ESB

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
10:51 Forsætisráðherra segir að stjórnvöld séu að skoða leiðir til að flýta afnámi gjaldeyrishaftanna í samstarfi við ESB. Jóhanna Sigurðardóttir ræddi málið við Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB, í gær og segist hafa fengið jákvæð viðbrögð. Hún tekur fram að ekkert formlegt samkomulag hafi verið gert. Meira »

Meira haldlagt af stinningarlyfjum

Viagra
10:32 Gríðarleg aukning varð í magni stinningarlyfja sem Tollgæslan lagði hald á við eftirlit í fyrra miðað við árið 2010. Hins vegar liggja ekki fyrir tölur um þróunina það sem af er þessu ári. Meira »

Aðeins sakfelldir fyrir sterana

Lögmenn í Straumsvíkurmálinu.
11:05 Sævar Sverrisson og Geir Hlöðver Ericsson eru báðir sakfelldir í Straumsvíkurmálinu svonefnda fyrir innflutning á sterum. Dómurinn taldi hins vegar ekki sannað að Geir Hlöðver hafi staðið að innflutningi fíkniefnanna sem voru í sama gámi og sterarnir. Meira »

„Gengur treglega að fá niðurstöðu“

Jóhanna Sigurðardóttir
10:51 „Varðandi skuldamálin erum við enn að skoða þessi lánsveð og það gengur treglega að fá niðurstöðu í þau mál,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Meira »

Prófa viðvörunarboð í farsíma

Á meðfylgjandi skjámynd má sjá hvernig hægt er að kalla fram upplýsingar um farsíma í ...
10:27 Viðvörunarkerfi sem getur sent neyðarskilaboð (sms) í farsíma vegna hættu hefur verið þróað til notkunar fyrir almannavarnir hér á landi. Verður kerfið reynt á þriðjudag með því að skilaboð verða send í farsíma í Vík í Mýrdal og nágrenni. Meira »

Skilaði inn 200 auka undirskriftum

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
10:27 „Það er búið að skila inn, í morgun, einhverjum tæpum 200 nöfnum til viðbótar í Reykjavík, þar sem að þetta kom upp,“ segir Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, aðspurður hvort hann sé búinn að skila inn nýjum undirskriftum í stað þeirra sem yfirkjörstjórnirnar í Reykjavík gerðu athugasemdir við. Meira »

Misþyrmdi manni og skildi eftir

Laugavegur.
09:57 Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en hann misþyrmdi manni um fertugt í febrúar sl. í íbúð við Laugaveg. Tveir til viðbótar eru jafnframt ákærðir fyrir að koma manninum ekki til hjálpar þar sem hann lá ósjálfbjarga og lífshættulega slasaður. Meira »

Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni

Ásmundur Einar Daðason
10:24 „Í aðdraganda þess að Alþingi samþykkti að leggja fram umsókn um aðild að Evrópusambandinu gáfu stjórnmálamenn fyrirheit um það að jafnræðis, hlutleysis og hlutlægni yrði gætt í umræðu um málið“, segir Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Þráðlaust net í Íslandsflugi

09:56 Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.
09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Toyota Corolla 2006, sjálfskipt, ek. 41 þ., v. 1.950þ
Til sölu Toyota Corolla '06, ekin 41 þ., sjálfskipt, sjálfvirk miðstöð með loftk...
TILBOÐ TOYOTA LANDCRUSIER 90 VX FLOTT EINTAK 50 ÁRA AFMÆLISÚTGÁFA
Er með flott eintak af 50 ára afmælisútgáfunni af Toyota Landcrusier 90 VX. Ekin...
Toyota Yaris DIESEL árgerð 2006
Toyota Yaris Diesel árgerð 07/2006. Ekinn 79.000 km. Sjálfskiptur. 5 dyra. Silf...
50 vinsælustu vörurnar í netverslun femin.is
Kynntu þér fjölbreytt úrval í netverslun www.femin.is og yfir 7.000 vöruliði ! ...
 
Samkoma - salt
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grensáskirkju Samk...
Starfsmaður í ræstingu
Ræstingar
??????????? ? ???????? ?????????? ??...
12836 fellahverfi útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...