Innlent
| Morgunblaðið
| 14.4.2007
| 5:30
| Uppfært
7:32
Mýrin skipti sköpum varðandi kvikmyndaaðsókn
Ingvar E. Sigurðsson í hlutverki Erlendar í Mýrinni.
Hver Íslendingur fór um það bil fimm sinnum í kvikmyndahús að meðaltali á síðasta ári samkvæmt upplýsingum frá SMÁÍS, Samtökum myndrétthafa á Íslandi. Alls voru bíóferðirnar um 1,5 milljónir sem er 8,7% aukning frá árinu áður.
Forsvarsmenn kvikmyndahúsanna segja þessa aukningu ekki koma á óvart þrátt fyrir áhyggjur erlendra kvikmyndafyrirtækja af niðurhali á kvikmyndum á Netinu. Segja þeir að miklu máli skipti að fjölmargar stórmyndir séu frumsýndar hér á landi á svipuðum tíma og í Bandaríkjunum, auk þess sem öll aðstaða í íslenskum kvikmyndahúsum sé til fyrirmyndar.
Vinsælli en Johnny Depp
Þá segja þeir að íslenska kvikmyndin Mýrin hafi skipt sköpum á síðasta ári, en hana sáu 81.850 manns og fékk hún besta aðsókn allra kvikmynda sem sýndar voru í íslenskum kvikmyndahúsum á síðasta ári. Í öðru sæti var bandaríska stórmyndin Pirates of the Caribbean 2, en hana sáu rúmlega 65.000 manns. Hún var hins vegar mest sótta myndin bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi.Bjartsýnir á frekari aukningu
Talsmenn kvikmyndahúsanna eru bjartsýnir á frekari aukningu í ár og telja þeir dagskrána enn glæsilegri en í fyrra. Því til rökstuðnings nefna þeir nokkrar þeirra stórmynda sem frumsýndar verða á þessu ári, svo sem Spiderman 3, Pirates of the Caribbean 3, Die Hard 4, Harry Potter and the Order of the Phoenix og Shrek 3.Í hnotskurn
» Bíóferðir á Íslandi voru um 1,5 milljónir á síðasta ári.» Flestir sáu Mýrina, eða 81.850 manns, og námu tekjur af myndinni rúmum 88 milljónum króna.
» Talsmenn kvikmyndahúsanna segja miklu skipta að kvikmyndir séu frumsýndar hér á sama tíma og í Bandaríkjunum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Innlent »
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
- Samningar Lýsingar leigusamningar
- Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna
- Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar
- Góður afli við Kolbeinsey
- Ferðamenn í aðgerð vegna beinbrota
- Kannast ekki við gjaldeyrisbrask með úr
- Agnes vígð 24. júní
- Áhrif bindandi úrskurða undir
- Verður þingað fram í júlí?
-
Kosning um viðræður óvanaleg
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
Ódýr gisting í Laugardal - Rvk
Kíkið á.
www.guesthousehelga.weebly.com
S. 892-3451
...
FÁÐU RÁÐGJAFA Í HEIMSÓKN - FRÍTT
BETRI REKSTUR. Bókhald og rekstrarráðgjöf. Sími 77 50 200 og 519 7585. www.be...
GLÆSILEG KENNSLUBIFREIÐ
Glæsileg kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Þ...
TANGLEWOOD GÍTARAR
Tanglewood gítarar í úrvali. Fást hjá okkur. ...




































