Margar einkaþotur á Reykjavíkurflugvelli

mbl.is/Júlíus

Einkaþotur verða ávallt algengari sjón á Reykjavíkurflugvelli og í kvöld, þegar meðfylgjandi mynd var tekin, var um tugur slíkra véla á vellinum. Þjónusta við einkaþotur hefur aukist umtalsvert á undanförnum misserum en mikið er um að Íslendingar noti slíkar vélar, ekki síst kaupsýslufólk. Einnig millilenda slíkar þotur gjarnan hér á landi á ferðum milli Bandaríkjanna og Evrópu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert