Nokkur fíkniefnamál á höfuðborgarsvæðinu

Fáein fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Við húsleit í Hafnarfirði fundust fíkniefni sem talið er að séu amfetamín og hass. Karlmaður um þrítugt var yfirheyrður vegna málsins sem er að mestu upplýst. Lögregluhundur var notaður við leitina.

Í miðborginni fundust ætluð fíkniefni í íbúð konu á fertugsaldri. Konan var handtekin og flutt á lögreglustöð. Á öðrum stað í miðborginni handtóku lögreglumenn tvo karlmenn um þrítugt. Þeir eru grunaðir um fíkniefnamisferli en í fórum þeirra fundust líka greiðslukort sem mennirnir gátu ekki gert grein fyrir.

Þá var karlmaður á þrítugsaldri handtekinn í Garðabæ síðdegis í gær en í fórum hans fundust ætluð fíkniefni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Mynd úr safni

Með loftbyssu í farangrinum

11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Kirkjugarðar geta varla starfað áfram

11:20 Kirkjugarðar geta ekki starfað áfram nema einingarverðið á hvern grafreit verði uppfært eins og það á að vera án allrar skerðingar,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ) og forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Meira »

Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér

Nýsköpunarsjóði er ætlað að vera virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum.
11:19 Nýsköpunarsjóður er í þröngri stöðu og getur ekki beitt sér sem skyldi sem virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum. Þetta sagði Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu á ársfundi sjóðsins. Meira »

Aðeins sakfelldir fyrir sterana

Lögmenn í Straumsvíkurmálinu.
11:05 Sævar Sverrisson og Geir Hlöðver Ericsson eru báðir sakfelldir í Straumsvíkurmálinu svonefnda fyrir innflutning á sterum. Dómurinn taldi hins vegar ekki sannað að Geir Hlöðver hafi staðið að innflutningi fíkniefnanna sem voru í sama gámi og sterarnir. Meira »

„Gengur treglega að fá niðurstöðu“

Jóhanna Sigurðardóttir
10:51 „Varðandi skuldamálin erum við enn að skoða þessi lánsveð og það gengur treglega að fá niðurstöðu í þau mál,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Meira »

„Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
11:18 „Ég er að segja að hann sé að segja ósatt um það að ég gangi hér á eftir þingmönnum og segi þeim hvernig þeir eigi að greiða atkvæði. Auðvitað gera þeir það sjálfir eins og þeir vilja. Ég hef ekki beitt mér á einn eða annan hátt í þessu máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi í dag. Meira »

Skoða leiðir um afnám hafta með ESB

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
10:51 Forsætisráðherra segir að stjórnvöld séu að skoða leiðir til að flýta afnámi gjaldeyrishaftanna í samstarfi við ESB. Jóhanna Sigurðardóttir ræddi málið við Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB, í gær og segist hafa fengið jákvæð viðbrögð. Hún tekur fram að ekkert formlegt samkomulag hafi verið gert. Meira »

Meira haldlagt af stinningarlyfjum

Viagra
10:32 Gríðarleg aukning varð í magni stinningarlyfja sem Tollgæslan lagði hald á við eftirlit í fyrra miðað við árið 2010. Hins vegar liggja ekki fyrir tölur um þróunina það sem af er þessu ári. Meira »

Prófa viðvörunarboð í farsíma

Á meðfylgjandi skjámynd má sjá hvernig hægt er að kalla fram upplýsingar um farsíma í ...
10:27 Viðvörunarkerfi sem getur sent neyðarskilaboð (sms) í farsíma vegna hættu hefur verið þróað til notkunar fyrir almannavarnir hér á landi. Verður kerfið reynt á þriðjudag með því að skilaboð verða send í farsíma í Vík í Mýrdal og nágrenni. Meira »

Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni

Ásmundur Einar Daðason
10:24 „Í aðdraganda þess að Alþingi samþykkti að leggja fram umsókn um aðild að Evrópusambandinu gáfu stjórnmálamenn fyrirheit um það að jafnræðis, hlutleysis og hlutlægni yrði gætt í umræðu um málið“, segir Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Skilaði inn 200 auka undirskriftum

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
10:27 „Það er búið að skila inn, í morgun, einhverjum tæpum 200 nöfnum til viðbótar í Reykjavík, þar sem að þetta kom upp,“ segir Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, aðspurður hvort hann sé búinn að skila inn nýjum undirskriftum í stað þeirra sem yfirkjörstjórnirnar í Reykjavík gerðu athugasemdir við. Meira »

Misþyrmdi manni og skildi eftir

Laugavegur.
09:57 Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en hann misþyrmdi manni um fertugt í febrúar sl. í íbúð við Laugaveg. Tveir til viðbótar eru jafnframt ákærðir fyrir að koma manninum ekki til hjálpar þar sem hann lá ósjálfbjarga og lífshættulega slasaður. Meira »

Þráðlaust net í Íslandsflugi

09:56 Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.
09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Lyngborgir.is. Sumarhúsalóðir
Til sölu eignarlóðir í Grímsnesi. Stærðir 5800 fm-8700 fm gott verð. 75 km frá ...
HREINSISPREY
Kristals-hreinsisprey Hreinsisprey fyrir kristalsljósakrónur og kr...
Opel Astra Caravan '00
Ekinn 163 þús., skoðaður 2013. 1.6l vél og sjálfskiptur. Nýbúið að skipta um tím...
Fleetwood Cheyenne (Resolute) 2006
Fleetwood Cheyenne 10 fet. Mjög vel með farið fellihýsi - lítið notað, nýskr. 20...
 
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Sýslumaðurinn á sauðárkróki - framhald uppboðs

Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi e...