Wilson Muuga tilbúið fyrir brottför af strandstað
Wilson Muuga á strandstað og þyrla Landhelgisgæslunnar á sveimi yfir. mbl.is/ÞÖK
Eftir fjögurra mánaða legu á strandstað við Hvalsnes er loksins komið að stóru stundinni. Reynt verður að draga flutningaskipið Wilson Muuga á flot í kvöld eða annað kvöld. Fimmtudagurinn kemur líka til greina ef veðrið er ómögulegt hina dagana. Ef ekki tekst að draga skipið út að þessu sinni verður beðið fram í maí eftir næsta stórstraumsflóði og víst er að tíminn vinnur ekki með skipinu sem sætir miklu sjávarálagi í fjörunni. Reyndar var óvenjugott veður á strandstað í gær og voru þeir allfegnir karlarnir sem eru að vinna í skipinu. Ríflega tugur manna hefur beinlínis búið í skipinu undanfarnar vikur og lagt nótt við dag að þétta vélarrúm og tanka, að ógleymdu lestargólfinu þar sem mestar skemmdirnar urðu. Um leið og fjarar út sæta menn færi og vinna í kringum skipið utan frá en drífa sig síðan um borð aftur þegar flæðir að. Þeir fóru heim í tveggja daga páskafrí en síðan var haldið áfram að vinna.
Í meginatriðum er skipið svo gott sem tilbúið til "brottfarar" en síðustu daga hefur verið unnið að því að prófa þéttingar í hólfum og vinna í rafmagninu. Verkefnið minnir um margt á björgun Samherjaskipsins Baldvins Þorsteinssonar sem strandaði í Meðallandsfjöru í mars 2004. Til stendur að flytja Wilson til Hafnarfjarðar og hugsa upp næstu skref þar.
Það er ekki hlaupið að því að koma stærðar flutningaskipi af strandstað. Fyrir utan viðgerðir á vettvangi hefur þurft að undirbúa sjálfan dráttinn með því að bora sérstakar holur í lítil sker úti í sjó aftan við skipið en í þau verða fest stýritóg til að fyrirbyggja að skipið snúist í vindi þegar tekið verður í það. Þegar drátturinn hefst er skipið sem múlbundið við skerin og þarf að draga það út um einskonar hlið á milli þeirra. Ekki nóg með þetta, því tvö stýritóg eru líka á hvoru borði að framanverðu og ná upp í klappir við ströndina og loks er fimmta tógið fest í stefnið og bundið við land. Með þessum hætti er skipinu "miðað" út á hárnákvæman fyrirhugaðan feril þegar það verður dregið út. Það eina sem nú þarf til að fullkomna verkið er hægviðri, en undanfarnar vikur hefur verið heilmikill sjógangur og læti við skipið.
Bloggað um fréttina
-
Gestur Guðjónsson Vonandi gengur þetta vel... -
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson Þar lá að ......
Innlent »
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
- Samningar Lýsingar leigusamningar
- Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna
- Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar
- Góður afli við Kolbeinsey
- Ferðamenn í aðgerð vegna beinbrota
- Kannast ekki við gjaldeyrisbrask með úr
- Agnes vígð 24. júní
- Áhrif bindandi úrskurða undir
- Verður þingað fram í júlí?
-
Kosning um viðræður óvanaleg
- Seldi Rolex úr fyrir skútuvarahlut
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 3. janúar 2007, Innlent Nauðsynlegt að draga Wilson Muuga ofar í fjöruna
- Þriðjudagur, 17. apríl 2007, Innlent Wilson Muuga komið á flot
- Föstudagur, 20. apríl 2007, Innlent Áhugi á Wilson Muuga
- Laugardagur, 29. desember 2007, Innlent Wilson Muuga á ný í fragtflutningum
- Þriðjudagur, 19. desember 2006, Innlent Björgunaraðgerðum lokið en lögregluvakt áfram á strandstað
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu




































