Fjölmiðlamenn sendir á vettvang vegna KR-fána á Akranesi

skessuhorn.is

Blaktandi KR fánar eru ekki algeng sjón á Akranesi, enda var blaðamaður Skessuhorns sérstaklega kallaður til þegar fánanum var flaggað við skipalyftuna í slippnum á Akranesi. Blótsyrði heyrðust hrópuð, en fram kemur á Skessuhorni að einhverntíma hefði þetta þótt afar alvarlegt athæfi á Akranesi.

Sökudólgurinn reyndist starfsmaður Daníelsslipps í Reykjavík, sem vildi fagna nýlegum Íslandsmeistaratitli KR í körfubolta, hann skildi lítið í látunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert