Fíkniefni fundust á höfuðborgarsvæðinu

Nokkurt magn af fíkniefnum fannst við húsleit á höfuðborgarsvæðinu í gær.

Talið er að þetta séu e-töflur og amfetamín. Ein kona var handtekin vegna málsins. Á öðrum stað á höfuðborgarsvæðinu fannst lítilræði af ætluðu fíkniefni.

Karlmaður um fertugt var yfirheyrður vegna málsins sem telst að mestu upplýst.

Í fyrrinótt var karlmaður á fertugsaldri færður á lögreglustöð en hann er einnig grunaður um fíkniefnamisferli.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert