Lýsi verðlaunað

Katrín Pétursdóttir veitir verðlaununum viðtöku.
Katrín Pétursdóttir veitir verðlaununum viðtöku. mbl.is/Brynjar Gauti

Lýsi hf hlaut Útflutningsverðlaun forseta Íslands og afhenti forseti Íslands herra Ólafur Ragnar Grímsson verðlaunin á Bessastöðum við hátíðlega athöfn í dag. Þetta er í nítjánda sinn sem verðlaunin voru afhent en þau eru veitt í samráði og samvinnu við Útflutningsráð íslands. Katrín Pétursdóttir framkvæmdastjóri Lýsis hf veitti verðlaununum viðtöku.

Valur Valsson formaður úthlutunarnefndar, sagði meðal annars í ávarpi sínu í tilefni verðlaunaveitingarinnar: „Lýsi hf. fær verðlaunin fyrir þann einstaka árangur sem fyrirtækið hefur náð í sölu- og markaðsmálum á afurðum úr lýsi og fyrir þá framsýni sem fyrirtækið hefur sýnt í vöruþróun og eflingu þekkingar og færni á sínu sviði. Fyrirtækið er góður fulltrúi fyrir þann vaxandi fjölda íslenskra fyrirtækja, sem haslar sér nú völl á alþjóðlegum neytendamarkaði með vörur og þjónustu er tengjast heilsueflingu og heilbrigðum lífsháttum.

Verðlaunagripurinn í ár er gerður af Leifi Breiðfjörð myndlistarmanni en merki Útflutningsverðlaunanna er eins og áður hannað af Hilmari Sigurðssyni.

Listaverkið eftir Leif heitir Kjarni og er unnið í silfurmósaík, spegil og gler. Um verk sitt segir listamaðurinn m.a.: „Hvert fyrirtæki á sér kjarna þekkingar og hugvits sem það byggir alla sína starfsemi og framleiðslu á.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert