Samfylkingin býður í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn

Samfylkingin býður til fjölskylduhátíðar í Húsdýragarðinum í Laugardal, á morgun laugardag. Garðurinn er opinn frá kl. 10 - 17 og er ókeypis í leiktækin, að því er segir í tilkynningu.

Allir geta tekið þátt í ratleik og 10 heppnar fjölskyldur vinna árskort í Húsdýragarðinn.

Auk þess að bregða á leik er boðið uppá hefðbundna dagskrá og sérstaka skemmtidagskrá.

Sérstök skemmtidagskrá verður á milli 14 og 16:30 en á meðal skemmtiatriða má nefna Skoppu og Skrýtlu, Felix og Gunna og þá verður töframaður á staðnum auk þess sem boðið verður upp á andlitsmálun.

Þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, og Össur Skarphéðinsson, sem leiða lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður, verða á staðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert