Fannst meðvitundarlaus í Sundlaug Kópavogs í morgun

Fimmtán ára drengur fannst meðvitundarlaus í Sundlaug Kópavogs um klukkan 10 í morgun. Þegar lögregla og sjúkrabíll kom að var endurlífgun í gangi og bar hún árangur. Drengurinn var í skólasundi þegar óhappið varð. Hann er nú í aðgerð á Landspítala-háskólasjúkrahúsi en ekki fengust nánari upplýsingar um líðan hans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert