Fimm grunaðir um ölvun við akstur

Fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Þrír voru stöðvaðir í Hafnarfirði og tveir í Reykjavík en þetta voru allt karlmenn á ýmsum aldri. Tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og sá þriðji var með löngu útrunnið ökuskírteini.

Lögreglan segir, að síðasttaldi hafi þar að auki lent í umferðaróhappi en hann ók bíl sínum aftan á annað ökutæki sem kastaðist síðan áfram á það þriðja. Engin slasaðist alvarlega en tjónið er allnokkuð.

Þá stöðvuðu lögreglumenn 18 ára ökumann í Kópavogi en sá hefur aldrei öðlast ökuréttindi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert