Heilbrigðisráðuneytið framlengir þjónustusamning við SÁÁ

Vogur, meðferðarstöð SÁÁ.
Vogur, meðferðarstöð SÁÁ. mbl.is/Árni Sæberg

Náðst hefur samkomulag milli heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins og fjármálaráðaráðuneytisins annars vegar og Samtaka áhugafólks um áfengisvandann, SÁÁ, hins vegar um að framlengja þjónustusamning, sem undirritaður var 29. október 2002 um rekstur sjúkrasviðs SÁÁ til ársloka 2007. Fær SÁÁ m.a. 80 milljóna króna eingreiðslu þegar skrifað verður undir viðauka við þjónustusamninginn í næstu viku.

Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneyti segir, að upphaflegur gildistími þjónustusamningsins hafi verið frá 1. janúar 2002 til 31. desember 2005 en SÁÁ hafi annast þjónustu í samræmi við ákvæði samningsins á gildistíma samningsins sem og frá 1. janúar 2006 og hafi þegar verið greitt í samræmi við ákvæði þess samnings.

Til viðbótar við þjónustu samkvæmt samningnum hefur þjónusta vegna ópíumfíkla verið aukin svo og göngudeildarþjónusta. Þá hefur húsnæðiskostnaður hækkað vegna breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga en í þeim fólst m.a. að undanþágur fasteignaskatta vegna sjúkrahúsa eru afnumdar í skrefum. Samkomulag er um að mæta þessum kostnaði svo og veikleika í rekstri áranna 2006-2007 með eingreiðslu að fjárhæð 80 milljónir, sem innt verður af hendi við undirritun viðauka við þjónustusamninginn í næstu viku.

Heilbrigðisráðuneytið segir, að áfram verði unnið að endurskoðun þjónustusamningsins með vísan til reglugerðar um samninga um rekstrarverkefni, sem ráðuneyti og ríkisstofnanir gera til lengri tíma en eins árs og stefnt sé að því, að nýr þjónustusamningur taki gildi í ársbyrjun 2008.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert