Þjófar handsamaðir í Grafarvogi

Lögreglumenn af svæðisstöðinni í Grafarvogi handtóku tvo karlmenn á þrítugsaldri fyrir helgina en mennirnir höfðu stolið tösku úr skóla í hverfinu en í henni voru m.a. ferðatölva og sími.

Lögreglan segir, að þjófarnir hafi reynt að malda í móinn en frásagnir þeirra hafi verið lítt trúverðugar, ekki síst í ljósi þess að öryggismyndavélar eru í umræddum skóla en upptakan af athæfi þjófanna var bæði skýr og greinileg og kom að mjög góðum notum við rannsókn málsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert