Menningarsamningur fyrir Suðurland undirritaður

Árni M. Mathiessen, Gunnar Þorgeirsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Árni M. Mathiessen, Gunnar Þorgeirsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Menningarsamningur fyrir Suðurland var síðdegis í dag undirritaður í Húsinu á Eyrarbakka. Gildistími samningsins er til ársloka 2009. Tilgangur menningarsamningsins er að efla menningarstarf á Suðurlandi og beina stuðningi ríkis og sveitarfélaga við slíkt starf í einn farveg.

Jafnframt eru áhrif sveitarfélaga á forgangsröðun verkefna aukin. Framlög ríkisins verða 30 milljónir króna árið 2007, 35 milljónir á næsta ári og 36 milljónir árið 2009 en sveitarfélögin leggja jafnframt fram fé til sameiginlegra verkefna hvort heldur er með framlögum frá einkaaðilum eða með eigin framlögum.

Gunnar Þorgeirsson formaður SASS undirritaði samninginn fyrir hönd sveitarfélaganna en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntámálaráðherra, og Árni M. Mathiessen, fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkisins.

Árið 2008 mun framlag sveitarfélaga nema 17,5% af heildarfjárhæð sem veitt er til verkefnastyrkja og 25% árið 2009. Sérstakt 5 manna menningarráð var skipað á fundi stjórnar Samtaka sveitarfélaga í dag og er formaður þess Jóna S. Sigurbjartsdóttir, oddviti í Skaftárhreppi. Ráðið hefur meðal annars það hlutverk að standa fyrir öflugu þróunarstarfi í menningarmálum, úthluta fjármagni til menningarverkefna og verkefna á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu á Suðurlandi jafnframt því að annast framkvæmd samningsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert