Bobby Fischer óánægður með framleiðslu íslenskrar heimildamyndar um sig

Bobby Fischer.

Bobby Fischer. mbl.is

Stuðningsmannahópur skákmeistarans Bobby Fischer, sem heitir réttu nafni Robert James Fischer, hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að Fischer sé óánægður með framleiðslu heimildarmyndar sem ber vinnuheitið „Vinur minn Bobby“. Að myndinni standa þeir Friðrik Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður og Kristinn Hrafnsson í samvinnu við Sæmund Pálsson og fleiri aðila, að því er segir í tilkynningunni.

Fram kemur í tilkynningu RJF-hópsins að Fischer hafi leitað til stuðningsmannahópsins og óskað eftir því að hópurinn veki sérstaka athygli á að „handrit og uppbygging umræddrar „heimildarmyndar“ með hann að viðfangsefni sé í miklu ósamræmi við það sem við hann hafi verið rætt á sínum tíma og brögð hafi verið í tafli,“ að því er segir í tilkynningunni.

Þar segir ennfremur:

    Meginþema myndarinnar nú, sem mun bera vinnuheitið „Vinur minn Bobby“ sé að hans mati mjög andstætt þeim hugmyndum sem lagt var upp með árið 2005 varðandi gerð hugsanlegrar fréttamyndar fyrir íslenskt sjónvarp um skipulagt mannrán á honum að undirlagi Bandaríkjastjórnar og fangelsun í Japan, veitingu íslensks ríkisborgararéttar og lausn úr fangelsi.

    Af þessu tilefni vill stjórn RJF hópsins koma á framfæri að Fischer hefur aldrei undirritað neinn samning eða leyfi fyrir umræddum sjónvarpsþætti. Öll notkun eða sýning á efni sem tekið hefur verið upp af umræddum aðilum og snertir mál hans eða persónu er ósamþykkt.

    Ekkert slíkt efni má nota, sjónvarpa eða sýna með neinum hætti án hans leyfis.

    Af þessum ástæðum er það í mikilli óþökk hans að innlendir og erlendir aðilar styðji fjárhagslega við gerð umræddar myndar eða taki hana til sýningar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Þórshöfn á Langanesi

Mjög hrottafengin árás

10:29 „Þetta var mjög hrottafengin árás,“ segir talsmaður lögreglunnar á Húsavík, en 71 árs gamall karlmaður var barinn og skorinn með hnífi á Þórshöfn í nótt. Árásarmaðurinn, karlmaður á þrítugsaldri, var handtekinn á staðnum og segir lögregla að um hafi verið að ræða uppgjör áratugagamals máls. Meira »

Ráðist á mann á áttræðisaldri

10:02 Karlmaður á áttræðisaldri liggur alvarlega slasaður á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir líkamsárás á Þórshöfn í nótt. Árásarmaðurinn, sem er tuttugu og þriggja ára gamall karlmaður, hefur verið handtekinn. Meira »

Hass og árás á leigubílstjóra

09:21 Nokkuð erilssamt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Meðal verkefna lögreglu voru hassreykingar unglinga, akstur gegn rauðu ljósi, afskipti af fjölda gesta á skemmtistöðum og árás á leigubílstjóra Meira »

Gestgjafinn varð æfur

09:12 Um hálf tvö leytið í nótt var kvartað yfir hávaða frá húsi við Rauðarárstíg í Reykjavík. Þegar lögregla kom á staðinn kom í ljós að þar stóð yfir unglingasamkvæmi og enginn fullorðinn var á staðnum. Haft var samband við skyldmenni sem komu á staðinn. Meira »

Hrun í ruslinu frá hruni

09:00 Efnahagur heimila speglast að nokkru í þeim úrgangi eða sorpi sem þau skila í ruslatunnur og á endurvinnslustöðvar. Sé þetta lagt til grundvallar hafa heimilin ekki enn náð sér á strik eftir hrunið haustið 2008. Mestur samdráttur frá hruni hefur hins vegar verið í efni frá byggingaverktökum. Meira »

Viðskotaillur og vildi ekki hjálp

09:15 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu í nótt um slys við bensínstöð N1 við Stórahjalla í Kópavogi. Maður hafði dottið í götuna sökum ölvunar. Þegar sjúkraflutningsmenn og lögregla ætluðu að aðstoða manninn brást hann hinn versti við. Meira »

Maður stunginn í Hafnarfirði

09:04 Maður var stunginn með hnífi í Hafnarfirði á fimmta tímanum í nótt. Atburðarás mun vera nokkuð óljós, að sögn lögreglu, en sex manns koma við sögu málsins. Fjórir voru handteknir og færðir í fangageymslur, þeirra á meðal var sá sem stunginn var. Meira »

112-dagurinn er í dag

08:48 112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag, laugardaginn 11. febrúar. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. Meira »

Hafa gert hugtakið merkingarlaust

Lilja Mósesdóttir, alþingismaður.
08:39 „Hvaða "vinstri-flokka"?“ spyr Lilja Mósesdóttir, alþingismaður, á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi aðspurð hvort hún og ný stjórnmálahreyfing hennar Samstaða, flokkur lýðræðis og velferðar stefni á samstarf við vinstriflokkana. Meira »

Hálka víða um land

08:22 Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum, snjóþekja á Lyngdalsheiði og hálkublettir eru víðast hvar á Suðurlandi. Hálka er í Kringum Vík. Meira »

Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið

Líflegt var á uppboði danska uppboðshússins Kopenhagen Fur.
08:30 Mikil eftirspurn var eftir minkaskinnum á loðskinnauppboði Kopenhagen Fur sem lauk í gær. Verðið hækkaði og hefur aldrei verið hærra. Áætlað er að meðalverð íslenskra skinna sem þar voru boðin til sölu hafi farið yfir 10 þúsund krónur. Meira »

Of ungir inni á Kónginum

08:20 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af ungmennum sem voru við skemmtanahald á skemmtistaðnum Kónginum í Grafarholti í Reykjavík. Þetta var um hálf tvö leytið í nótt, en lögregla var á staðnum við hefðbundið eftirlit. Meira »

Opið á skíðasvæðum norðan og austan

08:09 Ekki ætti að væsa um skíðaáhugafólk fyrir norðan og austan í dag, því skíðasvæðin á Dalvík, Hlíðarfjalli á Akureyri og í Oddsskarði verða opin í dag. Meira »

Vilja starfshóp um atvinnumálin

Blönduós.
07:30 Bæjarstjóri Blönduóss segir það vera skýra kröfu heimamanna að komið verði á fót starfshópi með þátttöku ráðuneyta og aðila á svæðinu varðandi frekari uppbyggingu atvinnulífs á Norðurlandi vestra. Meira »

Fengu lán úr sjóðum

Stefán Hilmarsson.
05:30 Fram kom í dómi sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag að ólögmæt lán hefðu verið tekin úr styrktarsjóðum Baugs til að fjármagna daglegan rekstrarkostnað. Meira »

Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu

Með vænar grásleppur.
08:00 Grásleppuvertíð hefst væntanlega eftir rúman mánuð, en samkvæmt drögum að reglugerð er reiknað með að heimilt verði að hefja veiðar 15. mars á flestum svæðum. Meira »

Bjartviðri austanvert

05:40 Suðvestanátt, víða 8-15 m/s, fram á daginn. Él verða vestan til en úrkomuminna með morgninum. Bjartviðri á austanverðu landinu. Snýst í sunnanátt síðdegis með slyddu á köflum en síðar rigningu vestantil í kvöld. Hiti kringum frostmark en hlýnar þegar líður á kvöldið. Meira »

Vildu vera í Póllandi

Pólskir verkamenn á Íslandi.
05:30 Góður meirihluti Pólverja sem tóku þátt í viðtalskönnun sumarið 2010, eða sex af hverjum tíu, kvaðst aldrei mundu hafa flutt til Íslands ef sæmandi starf hefði boðist heima fyrir. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
LINCOLN NAVIGATOR ELITE LONG
Lincoln Navigator Elite Long ´08 Flottasta gerðin. Ek. 72 þ...
Til sölu MMC Pajero DID disel '03 sjsk ek 130þ 33"dekk 7.manna
Mjög gott eintak af disel Pajero DID 3.2 sjálfsk ek 130þús 2003 árg dökkblár, 7....
Ökukennsla - Akstursmat - Endurtökupróf
Kenni á Mercedes Benz C180, frábæran kennslubíl. Renta ehf. ökukennsla - Eiríkur...
MMC Pajero 2003 7manna diesel 2,5. 5 gíra
MMC Pajero 2003 7manna diesel 2,5. 5 gíra. ek 188þús km Nýlegir gormar og fóðri...
 
Reykjavíkurborg deiliskipulag

Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingar...
Stúkan hekla
Félagsstarf
mHekla 6012020619 IV/ V...
Félagsráðgjafi
Sérfræðistörf
Félagsráðgjafi F...
Atvinna
Önnur störf
Landsfulltrúi Ungmennafélag Í...