„Framkoma Fischers kemur ekki á óvart"
Bobby Fischer. mbl.is/Sverrir
Friðrik segir að Fischer hafi á sínum tíma heimilað að myndin yrði gerð og þeir hafi gert með sér heiðursmannasamkomulag. Hann hafi í gær sett sig í samand við RJF-hópinn og beðið um fund vegna málsins, en hann muni fara fram á fimmtudag. Friðrik hefur unnið að myndinni um Fischer frá því mál hans komst í hámæli árið 2005 og stefnir á að myndin verði tilbúin til sýningar í desember.
Friðrik segir það misskilning að myndin sé um Bobby Fischer. „Þetta er mynd um Sæma rokk og Bobby Fischer," segir hann. Frá upphafi hafi markmiðið verið að lýsa sögu Sæmundar Pálssonar sem hafi ákveðið að reyna að frelsa vin sinn úr fangelsi í Asíu og tekist það.
Tekið allt aðra stefnu
Einar S. Einarsson, talsmaður RJF-hópsins, segir að á sínum tíma hafi hópurinn haft milligöngu um að Fischer gæfi kvikmyndatökuhópi frá Íslandi færi á sér og því hafi orðið að ráði að tökulið fylgdi Sæmundi og fleirum úr RJF-hópnum til Japans þegar reynt var að fá hann lausan úr fangelsi.Það hafi verið ljóst lengi að kvikmyndagerðin hafi tekið allt aðra stefnu og sé komin út í allt aðra sálma en stefnt var að í upphafi. Ekki sé lengur um að ræða fréttamynd fyrir íslenskt sjónvarp heldur sé verið að gera kvikmynd í fullri lengd, eins konar hetjumynd um Sæmund Pálsson. Um það hafi aldrei verið rætt við Fischer að leika sjálfan sig í kvikmynd fyrir heimsmarkað. Ýmsir hafi viljað kvikmynda sögu hans, þar á meðal stórfyrirtæki úti í heimi, en hann hafi aldrei léð máls á því. Þá hafi Fischer aldrei verið hlynntur því að fólk sem hann þekkti gerði sér mat úr frægð hans sér til frama eða í ágóðaskyni.
Félagar RJF-hópsins hafi talið sér skylt að koma orðsendingu Bobbys Fischers á framfæri við þá sem málið snertir hér heima. Fischer hafi einnig lagt áherslu á að upplýsingunum yrði komið á framfæri erlendis. Í gær mátti m.a. sjá ítarlega umfjöllun um þetta mál á www.chessbase.com, einni vinsælustu skákfréttasíðu heims.






































