Sex leikskólar fá hvatningarverðlaun

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, afhendir nú síðdegis hvatningarverðlaun leikskólaráðs Reykjavíkurborgar í fyrsta sinn. Nýtt leikskólaráð samþykkti að stofna til þeirra á fyrsta fundi sínum sl. haust. Markmið verðlaunanna er að hvetja til nýbreytni í leikskólastarfi og vekja athygli á því gróskumikla þróunarstarfi sem fram fer í leikskólum borgarinnar.

Foreldrar leikskólabarna, aðrir aðstandendur og starfsfólk skólanna sendu inn 30 tilnefningar vegna fjölmargra áhugaverðra þróunarverkefna í leikskólum borgarinnar.

Af þeim hlutu sex leikskólar hvatningarverðlaunin: Dvergasteinn fyrir verkefnin Ótrúleg eru ævintýrin og Samstarf myndlistaskólans og leikskólans
Fellaborg fyrir fjölmenningarverkefnið Mannauður í margbreytileika
Hamraborg fyrir verkefnið Vísindaleikir
Nóaborg fyrir verkefnið Stærðfræði
Sólborg fyrir verkefnin Sameiginlegt nám fatlaðra og ófatlaðra barna og Samvinna og fagstarf
Steinahlíð fyrir umhverfisverkefnið Í túninu heima

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert