Vilja sameina Árborg og Flóahrepp

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Árborg vilja skoða alvarlega þann kost að sameina sveitarfélögin Árborg og Flóahrepp í eitt. „Það er mikil samvinna milli sveitarfélaganna og hana mætti vel efla til muna,“ segir Þórunn Jóna Hauksdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg við fréttavefinn Suðurland.is.

„Í Laugardælum í Flóahreppi stendur einnig til að byggja nýja brú yfir Ölfusá ásamt stófelldri íbúabyggð. Í því ljósi kæmi sameining sér ekki síst vel og leiddi til þess að svæðin væru skipulögð sem ein heild,“ segir hún.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert