Innlent
| Morgunblaðið
| 22.5.2007
| 5:30
| Uppfært
7:50
Hús ráðherrans selt
Byggingarlag hússins þótti sérstakt. mbl.is
Fyrrverandi einbýlishús Hannesar Hafsteins ráðherra á Grundarstíg 10 er til sölu, um 90 árum eftir að skáldið settist þar að 1915 og bjó til dauðadags. Húsið er eitt elsta steinsteypta hús landsins með járnbentum, steyptum gólfplötum. Ýmsir leigjendur í húsinu urðu þjóðþekktir, í þeirra hópi Valtýr Stefánsson, útgefandi og ritstjóri Morgunblaðsins, í um fjóra áratugi, á árunum 1924 til 1963.
Hannes Hafstein, fyrsti ráðherra Íslands og einn svipmesti stjórnmálamaður sinnar tíðar, varð aftur bankastjóri við Íslandsbanka 1914 og gegndi því starfi til 1917, er hann varð að láta af því vegna vanheilsu, eftir að hafa gegnt því 1909 til 1912, í kjölfar þess að hann var ráðherra á árunum 1904 til 1909.
Skáldjöfurinn og foringi Heimastjórnarflokksins 1901 til 1912 varði því ævikvöldinu á Grundarstíg, en þangað flutti hann með fjölskylduna í október 1915. Sjö af tíu börnum hans bjuggu í húsinu, auk móður, tengdamóður og ráðskonu. Kona hans, Ragnheiður Stefánsdóttir Hafstein, lést í júlí 1913 og varð manni sínum mikill harmdauði.
Festi stjörnur fyrir börnin
Þegar Hannes lést 13. desember 1922 keypti Magnús Pétursson bæjarlæknir og síðar héraðslæknir Reykjavíkur húsið. Það var síðan selt Helga Guðbrandssyni sjómanni frá Akranesi 1928 og hefur verið í eigu einstaklinga úr fjölskyldu hans í rétt tæpa átta áratugi. Þegar Helgi og fjölskylda fluttu í húsið mátti enn greina stjörnur sem Hannes hafði fest í blátt svefnherbergisloft í risinu börnum sínum til skemmtunar.Í hnotskurn
» Ásett verð er 97 milljónir króna og eru alls 19 herbergi og fjórir gangar og miðrými í húsinu.» Benedikt Jónasson verkfræðingur teiknaði húsið sem þótti ólíkt öðrum byggingum í Reykjavík á þeim tíma, en eigandinn, Hannes, var einkar áberandi maður og þótti mjög glæsilegur á velli.
» Upphaflega voru kolaofnar með postulínsflísum í húsinu og bleiklitað stein- eða flotefni á gólfunum.
» Grunnflötur hússins er rúmir 100 fermetrar og er lofthæð á neðri hæð 2,95 metrar og 2,50 metrar á efri hæð.
Bloggað um fréttina
-
Torfusamtökin Rífa á húsið enda gamalt og illa farið. -
Birna Dis Vilbertsdóttir Flott hús
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Innlent »
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 29. ágúst 2006, Innlent Skemmdarverk framin í Herkastalanum á Ísafirði
- Laugardagur, 13. janúar 2007, Innlent Áhugi á Heilsuverndarstöðinni
- Miðvikudagur, 14. mars 2007, Innlent Uppbyggingu elsta húss miðborgar Reykjavíkur lokið
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
Ullarslá
Til sölu glæsileg íslensk ullarslá (græn að lit) með fallegum brúnum kraga, eins...
Garðuðun Meindyraeyðir
Uða garða gegn maðki og lus eyði Köngulom af husum geitungum flo öll almenn og s...
HYMER FEELING 430 - Létt og meðfærilegt hjólhýsi
HYMER Feeling 430 eru með fullkomnustu smá-hjólhýsum á markaði.
Hymer eru eins...
ELTAK - VOGIR
Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum. Bjóðum mesta úrval á Íslandi af s...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....




































